Ólafur slasaður eftir að þyrlan hans brotlenti

Ólafur Ólafsson, athafnamaður og vistmaður á Vernd, er talinn slasaður á hrygg og hálsi eftir að þyrla hans brotlenti á Hengilsvæðinu í gærkvöld. Fangelsismálastjóri segir að vistmenn eigi að vera komnir inn klukkan 23 um helgar.

Ólafur Ólafsson er talinn slasaður á hrygg og hálsi eftir að þyrla hans brotlenti á Hengilsvæðinu í gærkvöld.
Ólafur Ólafsson er talinn slasaður á hrygg og hálsi eftir að þyrla hans brotlenti á Hengilsvæðinu í gærkvöld.
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son, einn aðal­eig­andi Sam­skipa og einn stærsti hlut­hafi Kaup­þings, hefur verið lagður inn á Land­spít­al­ann eftir að þyrla í hans eigu brot­lenti á Heng­il­svæð­inu í gær­kvöld. Talið er að hann sé með meiðsl á hrygg og hálsi, sam­kvæmt mbl.is

Til­kynn­ing um að þyrla hefði hrapað við Nesja­velli barst um klukkan 19:45 í gær og voru þá björg­un­ar­sveit­ir, sjúkra­flutn­inga­menn og lög­regla kall­aðar á vett­vang. Far­þegum tókst að hringja í Neyð­ar­lín­una úr þyrl­unni, skömmu eftir að neyð­ar­boð var sent út. 

Um borð í þyrl­unni voru auk Ólafs og flug­manns­ins, þrír erlendir við­skipta­fé­lagar Ólafs og var hann með þá í útsýn­is­flug­i. 

Auglýsing

Ólafur var dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir aðild sína að Al Thani mál­inu  og er nýkom­inn af Kvía­bryggju yfir á Vernd, eins og aðrir hlut­að­eig­and­i. 

Páll Win­kel fang­els­is­mála­stjóri segir í svari sínu til Kjarn­ans að hann geti ekki tjáð sig um ein­stök mál, en reglar á Vernd um helgar sé sú að menn eigi að vera komnir inn fyrir klukkan 23:00. „Vist­menn eiga því frjálsan tíma yfir dag­inn um helg­ar.  Flestir nýta þann tíma til að vera með fjöl­skyldu og vinum eða sinna frí­stund­um,“ segir Pál­l. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None