Fasteignaverð rýkur upp og heldur áfram að hækka

Sérbýli hefur hækkað mun minna í verði en fjölbýli, á undanförnum árum. Fólk yfir fimmtugu á sjötíu prósent einbýlishúsa.

Hús
Auglýsing

Frá því fast­eigna­verð náði botni eftir hrun­ið, árið 2010, hefur fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 28,7 pró­sent að raun­virði, og ­sér­býli um 15,6 pró­sent, fram til dags­ins í dag. Allt bendir til þess að hækk­unin muni halda áfram. Í miðbæ Reykja­víkur hefur hækk­unin verið langt yfir­ ­með­al­talið í heild, eða 37,9 pró­sent.

Í nýrri kynn­ingu Reykja­vík Economics, sem Magnús Árn­i Skúla­son hag­fræð­ingur vann fyrir Íslands­banka, með sér­staka áherslu á sér­býl­i, ­segir að hækk­unin í mið­bænum sé mögu­lega vegna svo­nefndra Air­bnb áhrifa. Í mið­bænum hafa tæp­lega tvö þús­und íbúðir verið skráðar á vef Air­bnb til leigu fyr­ir­ ­ferða­menn, en vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ustu hefur verið gríð­ar­lega hrað­ur­ und­an­farin ár.

Fasteignaverð hefur hækkað mikið í miðbænum á undanförnum árum. Airbnb gæti verið ein skýring, segir Reykjavík Economics.

Auglýsing

Árið 2010 komu tæp­lega 500 þús­und ferða­menn til lands­ins, en ­spár gera ráð fyrir að 1,6 millj­ónir komi á þessu ári. Áhrifin á fast­eigna­markað hafa einkum komið fram í gegnum útleigu íbúða til ferða­manna. Það leiðir svo til þess að fram­boðs­hliðin verður minni, sem ýtir undir hækkun fast­eigna­verðs þegar eft­ir­spurnin er jafn mikil og raunin hefur ver­ið.

Í kynn­ing­unni kemur fram nákvæmt mat á fast­eigna­mark­aðn­um, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og hvernig sér­býli skipt­ist eftir aldri eig­enda. Þannig eru 37 pró­sent af öllu sér­býli í eigu eldra fólks, yfir sex­tugu, en 33 ­pró­sent af sér­býli eru í eigu fólks undir 49 ára. Um 30 pró­sent sér­býla er svo í eigu fólks á aldr­inum 49 til 60 ára.

Eftirspurn eftir húsnæði hefur verið stöðug af „náttúrulegum“ ástæðum, segir í kynningu Reykjavík Economics.

Í kynn­ing­unni kemur enn fremur fram að leigu­verð hafi hækk­að ­mikið á árunum 2010 til og með apríl 2016, eða um 53,7 pró­sent.

Í kynn­ing­unni er bent á það, að fátt virð­ist benda til­ ann­ars en að fast­eigna­verð muni halda áfram að hækka á næst­unni. Kaup­mátt­ur ­launa hefur auk­ist um 11,6 pró­sent á und­an­förnu ári, og verð­bólga hald­ist í skefjum á meðan laun hafa hækk­að. Eitt af því sem haldið hefur verð­bólgu niðri, er lágt olíu­verð á alþjóða­mörk­uð­um, sem hefur áhrif á verð­lag inn­fluttra vara. Nú er olí­ur­verð byrjað að hækka á nýjan leik, og hefur á und­an­förnum sex ­mán­uðum hækkað úr 27 Banda­ríkja­dölum í 50, sé miðað við tunn­una af hrá­ol­íu. 

Lík­legt er talið að verð­bólga muni aukast nokkuð á næstu miss­erum, en eins og oft­ast nær, er vandi um slíkt að spá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None