Gawker á leið í gjaldþrot vegna greiðslu til Hulk Hogan

Fjölbragðaglímukappinn Hulk Hogan fékk dæmdar 140 milljónir Bandaríkjadala frá fyrirtækinu Gawker Media vegna kynlífsmyndbands sem komst í umferð.

Hulk Hogan
Auglýsing

Fjöl­bragða­glímu­kapp­inn og leik­ar­inn Hulk Hogan er búinn að setja fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Gawker Media í gjald­þrota­með­ferð. Hann sigr­aði skaða­bóta­mál gegn fyr­ir­tæk­inu vegna kyn­lífs­mynd­bands af honum og unn­ustu félaga hans, sem komst í umferð með umfjöllun á vef í eigu Gawker hinn 4. októ­ber 2012. 

Dóm­stóll í Flor­ída ríki dæmdi Hogan 140 millj­ónir Banda­ríkja­dala í bæt­ur, eða sem nemur um 18 millj­örðum króna, vegna brota gegn frið­helgi einka­lífs hans. For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa brugð­ist við þessu með því að aug­lýsa eftir til­boðum í fyr­ir­tæk­ið. Gawker sinnir útgáfu­starf­semi, einkum á net­inu, en hefur einnig gefið út tíma­rit sem fjalla um dæg­ur­mál­efni og slúð­ur. Starfs­menn hafa mest verið í kringum 700 tals­ins, en hefur farið fækk­andi að und­an­förnu, enda rekst­ur­inn í upp­námi.

Fjár­festir­inn Peter Thi­el, sem þekkur er fyrir sprota­fjár­fest­ingar og nýsköp­un­ar­starf, er einn þeirra sem sótt hefur að Gawker, vegna umfjöll­unar um hann sem hann segir hafa verið meið­andi og átt meira skylt við ein­elti en mál­efna­lega umfjöll­un. Hann er sagður vilja kné­setja fyr­ir­tæk­ið, og sam­kvæmt umfjöllun New York Times, er hann einn þeirra sem hefur sýnt áhuga á að kaupa það, jafn­vel með það í huga að leggja það nið­ur.

Auglýsing

Nick Dent­on, stofn­andi Gawker Media, sagði  á Twitter síðu sinni að Thiel myndi ekki ná að þagga niður í Gawker. Fyr­ir­tækið myndi starfa áfram, þó eig­endur verði aðr­ir. Hann sagði frjálsa fjöl­miðlun eiga undir högg að sækja, ef frægir ein­stak­lingar gætu þaggað niður í fjöl­miðlun með mál­sóknum og pen­ing­um. 

Dóm­ur­inn sem féll Hogan í vil kom mörgum á óvart, enda upp­hæð­irnar sem hann fékk í bætur svim­andi háar, og fá dæmi um að víð­líka fjár­hæðir í dómum þar sem frið­helgi einka­lífs­ins er til umfjöll­un­ar. Denton sagði nið­ur­stöð­una vera „ótrú­lega“ og „óskilj­an­lega“, og að rétt­lætið myndi sigra að lok­um. Síðan þá hefur Gawker fari í gjald­þrota­með­ferð, þar sem það gat ekki greitt Hogan bæt­ur, og leitar nýrra eig­enda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None