Kynbundinn launamunur meðal félagsmanna Bandalags háskólamanna var 11,7 prósent á síðasta ári, samkvæmt niðurstöðum kjarakönnunar sem nýlega var gerð á vegum bandalagsins. Í sambærilegri könnun sem gerð var meðal félagsmanna BHM á síðasta ári og náði til ársins 2014 mældist kynbundinn launamunur í heild 9,4 prósent. Hann jókst því um 2,3 prósent milli ára samkvæmt niðurstöður þessara tveggja kannana.
Átt við þann launamun sem eftir stendur þegar laun beggja kynja hafa verið uppfærð miðað við 100 prósent starf og leiðrétt hefur verið fyrir áhrifum ýmissa þátta á heildargreiðslur, sem sagt mismunandi starfshlutfalls og vinnustundafjölda, menntunar, aldurs og ábyrgðar í starfi. Þetta þýðir að laun kvenna innan BHM hefðu að jafnaði þurft að vera 11,7 prósent hærri en þau voru árið 2015 til að vera jöfn launum karlanna.
Óleiðréttur launamunur kynja mældist tæplega 18 prósent, það er að segja heildargreiðslur til karla voru að jafnaði um 18 prósent hærri en til kvenna þegar laun höfðu verið uppfærð miðað við 100 prósent starf.
Könnunin var gerð af fyrirtækinu Maskínu í mars og apríl síðastliðinn og náði til félagsmanna BHM, sem voru í starfi 1. nóvember 2015, rúmlega 12.000 manns. Svarendur voru um 4.800 og var svarhlutfallið því um 40 prósent af þýðinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá BHM.
Þróunin er mismunandi eftir vinnuveitendum. Meðal svarenda sem störfuðu hjá ríki og hjá sveitarfélögum öðrum en Reykjavíkurborg jókst kynbundinn launamunur milli kannana en minnkaði meðal svarenda sem störfuðu hjá Reykjavíkurborg og einkafyrirtækjum.
Meðallaun og starfstengdar greiðslur félagsmanna BHM námu 631.000 krónum á síðasta ári samkvæmt könnuninni og hækkuðu um 8,5 prósent frá fyrri könnun. Meðallaun og starfstengdar greiðslur kvenna námu 599.000 krónum og karla 699.000 krónum.