Guðni Th. sjötti forseti Íslands - Hildur setti met í óvinsældum

Guðni Th. með tveimur af börnum sínum og eiginkonu á kjörstað í gær.
Guðni Th. með tveimur af börnum sínum og eiginkonu á kjörstað í gær.
Auglýsing

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur verið kjör­inn sjötti for­seti Íslands. Hann hlaut 39,1 pró­sent atkvæða í for­seta­kosn­ing­unum sem lauk í gær. Það er eilítið minna en Ólafur Ragnar Gríms­son hlaut í kosn­ing­un­unum 1996 þegar hann var fyrst kjör­inn for­seti. Ólafur Ragnar hlaut þá um 41 pró­sent atkvæða. Guðni Th. hlaut þó hlut­falls­lega fleiri atkvæði en Vig­dís Finn­boga­dóttir fékk árið 1980 þegar hún var kjörin for­seti með um 34 pró­sent atkvæða. 

Stærstu tíð­indi kosn­ing­anna, utan þess hver bar sigur úr být­um, var fylgi Höllu Tóm­as­dótt­ur, sem reynd­ist mun meira en kann­anir höfðu gefið til kynna. Alls fékk Halla 27,9 pró­sent atkvæða en hún mæld­ist með um tvö pró­sent fylgi í skoð­ana­könn­unum í upp­hafi kosn­inga­bar­átt­unn­ar. Andri Snær Magna­son lenti í þriðja sæti og fékk 14,3 pró­sent atkvæða. Davíð Odds­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, for­sæt­is­ráð­herra, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hlaut 13,7 pró­sent atkvæða. Fylgi við hann dal­aði umtals­vert þegar leið á kosn­inga­bar­átt­una. Þetta er í fyrsta sinn sem Davíð tapar kosn­ingum á sínum stjórn­mála­ferli. Þá vakti frammi­staða Sturlu Jóns­sonar nokkra athygli, en hann hlaut alls 3,5 pró­sent atkvæða. 

Fyrir kosn­ing­arnar í gær átti Hannes Bjarna­son hið vafa­sama met að hafa notið minnst fylgis allra sem boðið hafa sig fram í for­seta­kosn­ing­um. Það met var marg­s­leg­ið. Alls fjórir fram­bjóð­endur fengu færri atkvæði en Hannes hlaut árið 2012, þegar hann kusu alls 1.556 manns. Elísa­bet Jök­uls­dóttir hlaut 1.280 atkvæði, Ást­þór Magn­ús­son hlaut 615 atkvæði og Guð­rún Mar­grét Páls­dóttir 477 atkvæði. Lest­ina rak hins vegar Hildur Þórð­ar­dótt­ir. Hún hlaut ein­ungis 294 atkvæð­i. 

Auglýsing

Kjör­sókn var umtals­vert betri en í for­seta­kosn­ing­unum 2012, þegar alls fimm fram­bjóð­endur buðu sig fram gegn sitj­andi for­seta. Þá kusu 69,3 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá. Í kosn­ing­unum sem lauk í gær reynd­ist kjör­sóknin 75,7 pró­sent. 

Þrátt fyrir að kosn­ingum sé lokið mun Ólafur Ragnar sitja áfram sem for­seti út júlí­mán­uð. Þann 1. ágúst mun Guðni Th. Jóhann­es­son svo verða settur í emb­ætt­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None