Hættir á RÚV og fer í Pírata

Gunnar Hrafn Jónsson, fréttamaður á erlendri deild Fréttastofu RÚV, hefur sagt starfi sínu lausu til að hella sér út í pólitíkina. Hann ætlar að ganga til liðs við Pírata.

Gunnar Hrafn Jónsson hefur starfað á Fréttastofu RÚV í átta ár en hefur nú sagt upp störfum.
Gunnar Hrafn Jónsson hefur starfað á Fréttastofu RÚV í átta ár en hefur nú sagt upp störfum.
Auglýsing

Gunnar Hrafn Jóns­son, frétta­maður erlendu deildar Frétta­stofu RÚV, hefur sagt upp störfum eftir átta ár á Frétta­stof­unni til að ganga til liðs við Pírata. Gunnar Hrafn segir frá þessu á Face­book­síðu sinn­i. 

Þar seg­ist hann hafa fundið fyrir vax­andi óþoli síð­ustu miss­eri „fyrir því hvert við stefnum sem sam­fé­lag.“ „Eftir að ég eign­að­ist mitt fyrsta barn fyrir rúmum tveimur árum hefur þessi til­finn­ing bara ágerst. Í fyrsta sinn finnst mér ekki nóg að fók­usa bara á alþjóða­málin eins og ég hef gert sem frétta­maður í erlendum frétt­um. Það þarf að taka dálítið til hér heima og það verður bara skýr­ara fyrir mér með hverjum deg­inum sem líð­ur,“ segir Gunnar Hrafn. 

Hann bendir á að það sé ekki við­eig­andi fyrir frétta­menn RÚV að tjá sig um mál­efni líð­andi stundar og segir svo í fram­hald­in­u: 

Auglýsing

„Þessi rík­is­stjórn sökk­ar. Tortóla er skatta­skjól. Pip­ar­fylltar lakk­rís­reimar eru ekki alveg að gera sig. Guðni verður flottur for­seti. Eiður Smári ætti að fá að spila meira.“

Langar í próf­kjör

Gunnar Hrafn seg­ist ekki vera búinn að taka neina ákvörðun um það hvernig starfi hans með Pírötum verði hátt­að. Hann seg­ist bara vera búinn að ákveða að taka þátt í bar­átt­unni. „Strax og ég nefndi það að ég ætl­aði að segja upp í góðri og öruggri vinnu sem ég elska til að ganga í Pírata var ég spurður hvort ég ætl­aði þá í próf­kjör. Auð­vitað langar mig til þess,“ segir hann. 

Helgi Hrafn hættir

Helgi Hrafn Gunn­­ar­s­­son þing­­maður Pírata, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í kom­andi þing­­kosn­­ing­um, sem fyr­ir­hug­aðar eru í haust. Áður hafði Helgi, sem nýtur mik­illa per­­són­u­vin­­sælda hjá kjós­­end­um, sagt að hann ætl­­aði fram.  Helgi segir að hann sé ekki að hætta í stjórn­­­mál­um, heldur að færa sig til og starfa innan flokks­ins. „Ég er ekki í stjórn­­­málum fyrir per­­són­u­­fylg­i,“ segir hann. 

Ekki fyrsti fjöl­miðla­mað­ur­inn í Pírötum

Gunnar Hrafn er ekki fyrsti fjöl­miðla­mað­ur­inn sem gengur til liðs við Pírata fyrir kom­andi kosn­ing­ar. Björn Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri, gaf kost á sér í próf­kjör fyrir Norð­aust­ur­kjör­dæmi og vildi leiða list­ann. Hann end­aði hins vegar í sjö­unda sæti og gagn­rýndi flokk­inn harð­lega fyrir klíku­skap í kjöl­far­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None