Brot MS enn alvarlegra en áður var talið

neysluvorur_15348676689_o.jpg
Auglýsing

Brot Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) á sam­keppn­is­lögum er enn alvar­legra en Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafði áður talið, og lagt til grund­vallar í eldri ákvörðun sinni um brot fyr­ir­tæk­is­ins. Ef fram­leiðslu­deild MS hefði sjálf þurft að kaupa hrá­mjólk á því verði sem fyr­ir­tækið seldi sam­keppn­is­að­ilum sínum hana þá hefði sú starf­semi MS verið rekin með umtals­verðu tapi. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að sekta MS um 480 millj­ónir króna, sem gerð var opin­ber í dag. 

Sam­keppn­is­eft­ir­litið kemst þar að þeirri nið­ur­stöðu að MS hafi mis­­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja keppi­­nautum (t.d. Mjólku og síðar Kú) hrá­­mjólk til fram­­leiðslu á mjólk­­ur­vörum á óeðli­­lega háu verði á sama tíma og MS og aðilar tengdir fyr­ir­tæk­inu, sér­stak­lega Kaup­fé­lag Skag­firð­inga (KS) fengu hrá­efnið undir kostn­að­­ar­verði.  

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði MS upp­­haf­­lega fyrir umrædd brot í sept­­em­ber 2014. Þá var sektin 370 millj­­ónir króna. Áfrýj­un­­­ar­­­nefnd sam­keppn­is­­­mála komst að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í des­em­ber 2014 að fella yrði úrskurð­inn úr gildi, vegna þess að MS upp­­­lýsti ekki eft­ir­litið um samn­ing á milli fyr­ir­tæk­is­ins og Kaup­­­fé­lags Skag­­­firð­inga, sem á hlut í MS og er einn þeirra aðila sem fékk hrá­­­mjólk á lægra verði.  Áfrýj­un­­­ar­­­nefndin taldi þess vegna að henni væri því skylt að vísa mál­inu aftur til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins., sem rann­sak­aði málið aftur og kom­­st að nýrri nið­­­ur­­­stöðu um að MS hefði brotið sam­keppn­is­lög. 

Auglýsing

Sú nið­ur­staða var að brot MS væri enn alvar­legra en áður hafði verið talið og því var sektin hækkuð úr 370 millj­ónum króna í 480 millj­ónir króna. 

Skað­aði neyt­endur og bændur

Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins segir að MS hafi brotið með mjög alvar­legum hætti gegn sam­keppn­is­lög­um. „Keppi­nautar MS þurftu bæði að sæta því að fá grund­vall­ar­hrá­efni á óeðli­lega háu verði og að MS sjálf og tengdir aðilar fengju þetta hrá­efni á mun lægra verði. Var ekki nóg með að KS og Mjólka II fengju hrá­mjólk­ina á mun lægra verði en keppi­nautar þeirra heldur var hún auk þess verð­lögð af MS undir kostn­aði. Var þetta til þess fallið að veita þeim veru­legt sam­keppn­is­for­skot gagn­vart keppi­naut­um. Vað það til­gangur þess­ara aðgerða MS. Með þessu móti var geta keppi­nauta til þess að keppa við MS og tengd félög skert með alvar­legum hætti og mark­aðs­ráð­andi staða MS var­in. Er það til þess fallið að skaða á end­anum hags­muni neyt­enda og bænda. Þá liggur fyrir að MS veitti Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu rangar upp­lýs­ingar í hinu fyrra máli og lét undir höfuð leggj­ast að upp­lýsa eft­ir­litið um mik­il­væg gögn. Hefur það tafið úrlausn máls­ins og skaða sam­keppn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None