Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra ætlar ekki að bjóða sig fram til for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins gegn Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, sitj­andi for­manni flokks­ins. Hún reiknar þó með því að flokks­þingi flokks­ins, sem á að óbreyttu að fara fram eftir ár, verði flýtt og að það verði haldið fyrir kosn­ingar sem fyr­ir­hug­aðar eru í haust. Þetta kom fram í við­tali við Lilju í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í morg­un. 

Hún sagði að Sig­mundur Davíð væri nú að tala við flokks­menn út um allt land og að hún haldi að þau sam­töl gangi vel fyrir sig. Sjálf seg­ist Lilja ekki enn hafa ákveðið hvort hún ætli að bjóða sig fram í kom­andi kosn­ingum en að það væri spenn­andi mögu­leiki. Lilja situr sem utan­þings­ráð­herra eftir að hafa verið valin af Fram­sókn­ar­flokknum til að koma inn í rík­is­stjórn þegar Sig­mundur Davíð vék úr stóli for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far Wintris-­máls­ins.

Sig­­­urður Ingi Jóhanns­­­son, vara­­­for­­­maður Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins og for­­­sæt­is­ráð­herra, hefur einnig sagt opin­ber­lega að hann ætli ekki að bjóða sig fram gegn Sig­­­mundi Davíð ef sá síð­­­­­ar­­­nefnd­i á­kveður að bjóða sig aftur fram til for­­­manns. 

Auglýsing

Sig­­mundur Davíð var í við­tali í sama þætti 22. maí síð­ast­lið­inn, þegar hann snéri til baka eftir frí sem hann fór í eftir að hafa sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra. Þar sagði Sig­mundur Davíð að hann ætl­aði sér að halda áfram í stjórn­mál­um, að hann ætl­aði að bjóða sig aftur fram sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á ný og til þings í haust. Hann sagð­ist gera ráð fyrir því að hann njóti áfram stuðn­­ings til þess, og það kæmi honum á óvart ef flokk­­ur­inn hans ætl­­aði að „láta þessa atburða­r­ás“ hafa áhrif á það, þegar ráð­ist hefði verið að hon­­um. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hélt mið­stjórn­ar­fund í byrjun júní. Að honum loknum sögðu flestir þing­menn flokks­ins að þeir reikn­uðu með að Sig­mundur Davíð myndi leiða hann áfram. Hösk­­uldur Þór­halls­­son, þing­­mað­­ur­ Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, gagn­rýndi sumt sem fram fór á fund­inum harð­lega og sagð­ist aldrei hafa orðið vitni við­líkri ­for­ingja­­dýrkun og virt­ist vera hjá „fá­­mennum en dug­­legum hópi inn­­an­ Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins“. Það væri tölu­verð und­ir­alda í flokknum og hörð gagn­rýn­i hefði komið fram á Sig­­mund Davíð Gunn­laugs­­son, á mið­­stjórn­­­ar­fund­in­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None