Liðlega tvö hundruð íbúar í Mývatnssveit lýsa andstöðu við að byggt verði hótel á bakka Mývatns við Hótel Reykjahlíð. Framkvæmdin er sögð ganga gegn anda laga um verndun Mývatns og Laxár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Byggingin er samkvæmt teikningu öll langt innan 200 metra verndarlínu laganna. Íbúarnir telja að hún muni spilla útsýni til vatnsins og ímynd sveitarinnar. Samþykkt áformanna skapi hættulegt fordæmi varðandi framkvæmdir á verndarsvæðinu.
Undirskriftum var safnað meðal íbúa með lögheimili í Skútustaðahreppi sem eru 18 ára og eldri. Samtals skrifuðu 202 eða 66 prósent íbúanna undir. Fimmtíu og átta, eða 19 prósent höfnuðu þátttöku. Ekki náðist til 45 íbúa og nokkrir tóku ekki þátt vegna trúnaðarstarfa sem þeir hafa með höndum. Samtals eru það um 15 prósent íbúa, segir í tilkynningunni.
Söfnun undirskrifta hófst laugardaginn 25. júní en lauk 12. júlí þegar Yngvi Ragnar Kristjánsson, oddviti hreppsnefndar tók við undirskriftalistunum úr hendi Ásdísar Illugadóttur.
Yngvi Ragnar þakkaði söfnurum undirskriftanna fyrir að sýna málefnum sveitarfélagsins áhuga. Auðvitað verði hlustað á það sem verulegur meirihluti íbúanna segi. „Við undirrituð, íbúar í Skútustaðahreppi, leggjumst gegn áformaðri byggingu við Hótel Reykjahlíð. Byggingin gengur gegn anda laga um verndun Mývatns og Laxár þar sem 200 metra bakki er friðaður. Hún spillir útsýni til vatnsins og er brot á þeirri reglu að hefja atvinnurekstur ekki vatnsmegin vegar. Þótt talað sé um viðbyggingu er öllum ljóst að hér er annað og meira á ferðinni. Samþykki fyrirliggjandi deiluskipulagstillögu myndi setja hættulegt fordæmi. Við skorum því á sveitarstjórn og skipulagsnefnd að stöðva þegar í stað umfjöllun um hana,“ sagði í textanum sem fólk undirritaði.