snapchat_14994809473_o.jpg
Auglýsing

Frá og með 1.sept­em­ber 2016 þurfa við­skipta­vinir 365 sem eru í áskrift­ar­leið­inni Enda­laus GSM að greiða tvö þús­und krónur ef þeir nota meira en 30 GB á mán­uði. Þá hækka þeir þakið upp í 100 GB. Þegar leiðin var var kynnt í febr­úar síð­ast­lið­inn þá kom fram að áskrif­endur hennar myndu „fá ótak­mark­aðar mín­útur og SMS óháð því hvaða sím­fyr­ir­tæki mót­tak­andi sím­tals­ins er. Enda­laust gagna­magn fylgir áskrift­ar­leið­inni en fyrir þetta greiða not­endur 2.990 krónur á mán­uð­i.“ Þetta kemur fram á til­kynn­inga­síðu 365, þar sem verð­breyt­ingar á vörum og þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins eru birt­ar.

Á sama tíma mun verð í áskrift­ar­leið­inni Enda­laus heima­sími hækka úr 1.990 krónum í 2.490 krón­ur.

365 hefur boðið upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti frá haustinu 2013. Á far­síma­mark­aði var fyr­ir­tækið með 3,4 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í lok síð­asta árs og við­skipta­vinir þess sam­tals 14.497 tals­ins, sam­kvæmt töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar. 365 GSM er á dreifi­kerfi Sím­ans, sem þýðir að fyr­ir­tækið kaupir aðgang að því kerfi fyrir við­skipta­vini sína.

Auglýsing

Á sama tíma og Enda­laust GSM var kynnt var greint frá því að netá­skrif­endur 365 myndu einnig fá ótak­markað nið­ur­hal. Með völdum til­boðs­pökk­um, sem inni­halda einnig áskriftir að sjón­varps­stöðvum 365, býðst við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins nú að greiða eitt þús­und krónur á mán­uði ofan á áskrift­ar­gjald fyrir inter­net­ið. Við bæt­ist aðgangs­gjald upp á nokkur þús­und krón­ur.

365 missti mark­aðs­hlut­deild á inter­net­mark­aði á árinu 2015,  þegar hlut­­fall hennar fór úr 13 pró­­sentum í 12,6 pró­­sent. Við­­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins í inter­­net­­þjón­­ustu fjölg­aði úr 15.551 í 15.665, eða um 114 tals­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None