Starfsfólk Fréttablaðsins og Vísis hefur sent frá sér yfirlýsingu til stjórnarformanns 365, forstjóra og aðalritstjóra fyrirtækisins, þar sem uppsögn á yfirmanni ljósmyndadeildar 365, Pjeturs Sigurðssonar, er mótmælt harðlega. Uppsögnin er sögð óverðskulduð í yfirlýsingunni.
„Jafnframt eru hörmuð óásættanleg vinnubrögð aðalritstjóra og yfirstjórnar fyrirtækisins í aðdraganda uppsagnar Pjeturs og við kynningu á henni til samstarfsmanna hans,“ segir í yfirlýsingunni, sem var samþykkt einróma á fundi starfsmanna Fréttablaðsins og Vísis í gær. „Við beinum því til stjórnar og stjórnenda 365 að tryggja að slík framganga, sem grefur undan faglegum grunni og trúverðugleika fréttastofunnar, geti ekki endurtekið sig.“ Pjetur hafi þriggja áratuga reynslu sem blaðaljósmyndari. Þar af sé þrettán ára starfsferill hjá Fréttablaðinu og Vísi. „Hann á að baki farsælan feril og hefur reynst góður samstarfsmaður.
Við teljum að öll meðferð málsins hafi skaðað alvarlega það traust sem verður að ríkja innan ritstjórnarinnar,“ segir að lokum í yfirlýsingunni.
Líkt og Kjarninn greindi frá fyrir helgi var Pjetri sagt upp störfum, en hann hafði kvartað undan einelti af hendi Kristínar Þorsteinsdóttur, aðalritstjóra fyrirtækisins. Fréttatíminn greindi fyrst frá eineltismálinu í maí síðastliðnum. Eftir að Pjetur kvartaði undan einelti setti mannauðsstjóri fyrirtækisins í gang formlega athugun á málinu. Þeirri athugun var hins vegar hætt eftir að Kristín komst á snoðir um málið, og þá var Pjetur sendur í leyfi. Þetta var í byrjun maí. Skömmu síðar lét mannauðsstjórinn af störfum hjá fyrirtækinu.
Kjarninn hefur reynt að ná tali af bæði Kristínu Þorsteinsdóttur, aðalritstjóra 365, og Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra fyrirtækisins, án árangurs.
Yfirlýsing starfsmannanna í heild sinni:
Til stjórnarformanns 365, forstjóra og aðalritstjóra.
Við, starfsmenn Fréttablaðsins og Vísis, mótmælum harðlega óverðskuldaðri uppsögn yfirmanns ljósmyndadeildar 365, Pjeturs Sigurðssonar. Jafnframt eru hörmuð óásættanleg vinnubrögð aðalritstjóra og yfirstjórnar fyrirtækisins í aðdraganda uppsagnar Pjeturs og við kynningu á henni til samstarfsmanna hans.
Við beinum því til stjórnar og stjórnenda 365 að tryggja að slík framganga, sem grefur undan faglegum grunni og trúverðugleika fréttastofunnar, geti ekki endurtekið sig.
Pjetur Sigurðsson hefur þriggja áratuga reynslu sem blaðaljósmyndari. Þar af þrettán ára starfsferil hjá Fréttablaðinu og Vísi. Hann á að baki farsælan feril og hefur reynst góður samstarfsmaður.
Við teljum að öll meðferð málsins hafi skaðað alvarlega það traust sem verður að ríkja innan ritstjórnarinnar.
Samþykkt einróma á fundi starfsmanna Fréttablaðsins og Vísis 8. ágúst 2016.