Starfsfólk Fréttablaðsins og Vísis segir vinnubrögð stjórnenda 365 óásættanleg

365
Auglýsing

Starfs­fólk Frétta­blaðs­ins og Vísis hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu til stjórn­ar­for­manns 365, for­stjóra og aðal­rit­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem upp­sögn á yfir­manni ljós­mynda­deildar 365, Pjet­urs Sig­urðs­son­ar, er mót­mælt harð­lega. Upp­sögnin er sögð óverð­skulduð í yfir­lýs­ing­unn­i. 

„Jafn­framt eru hörmuð óásætt­an­leg vinnu­brögð aðal­rit­stjóra og yfir­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda upp­sagnar Pjet­urs og við kynn­ingu á henni til sam­starfs­manna hans,“ segir í yfir­lýs­ing­unni, sem var sam­þykkt ein­róma á fundi starfs­manna Frétta­blaðs­ins og Vísis í gær. „Við beinum því til stjórn­ar og stjórn­enda 365 að tryggja að slík fram­ganga, sem grefur undan fag­legum grunni og trú­verð­ug­leika frétta­stof­unn­ar, geti ekki end­ur­tekið sig.“ Pjetur hafi þriggja ára­tuga reynslu sem blaða­ljós­mynd­ari. Þar af sé þrettán ára starfs­fer­ill hjá Frétta­blað­inu og Vísi. „Hann á að baki far­sælan feril og hefur reynst góður sam­starfs­mað­ur.

Auglýsing

Við teljum að öll með­ferð máls­ins hafi skaðað alvar­lega það traust sem verður að ríkja innan rit­stjórn­ar­inn­ar,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unn­i. 

Líkt og Kjarn­inn greindi frá fyrir helgi var Pjetri sagt upp störf­um, en hann hafði kvartað undan ein­elti af hendi Krist­ínar Þor­steins­dótt­ur, aðal­rit­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Frétta­­tím­inn greindi fyrst frá ein­elt­is­­mál­inu í maí síð­­ast­liðn­­­um. Eftir að Pjetur kvart­aði undan ein­elti setti mannauðs­­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í gang for­m­­lega athugun á mál­inu. Þeirri athugun var hins vegar hætt eftir að Kristín komst á snoðir um mál­ið, og þá var Pjetur sendur í leyfi. Þetta var í byrjun maí. Skömmu síðar lét mannauðs­­stjór­inn af störfum hjá fyr­ir­tæk­in­u. 

Kjarn­inn hefur reynt að ná tali af bæði Krist­ínu Þor­steins­dótt­ur, aðal­rit­stjóra 365, og Sæv­ari Frey Þrá­ins­syni, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, án árang­ur­s. 

Yfir­lýs­ing starfs­mann­anna í heild sinn­i: 

Til stjórn­ar­for­manns 365, for­stjóra og aðal­rit­stjóra. 

Við, starfs­menn Frétta­blaðs­ins og Vís­is, mót­mælum harð­lega óverð­skuld­aðri upp­sögn yfir­manns ljós­mynda­deildar 365, Pjet­urs Sig­urðs­son­ar. Jafn­framt eru hörmuð óásætt­an­leg vinnu­brögð aðal­rit­stjóra og yfir­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda upp­sagnar Pjet­urs og við kynn­ingu á henni til sam­starfs­manna hans. 

Við beinum því til stjórnar og stjórn­enda 365 að tryggja að slík fram­ganga, sem grefur undan fag­legum grunni og trú­verð­ug­leika frétta­stof­unn­ar, geti ekki end­ur­tekið sig. 

Pjetur Sig­urðs­son hefur þriggja  ára­tuga reynslu sem blaða­ljós­mynd­ari. Þar af þrettán ára starfs­feril hjá Frétta­blað­inu og Vísi. Hann á að baki far­sælan feril og hefur reynst góður sam­starfs­mað­ur. 

Við teljum að öll með­ferð máls­ins hafi skaðað alvar­lega það traust sem verður að ríkja innan rit­stjórn­ar­inn­ar.

Sam­þykkt ein­róma á fundi starfs­manna Frétta­blaðs­ins og Vís­is  8. ágúst 2016.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None