Illugi eini þingmaðurinn sem á eftir að svara

Mennta- og menningarmálaráðherra er eini núverandi þingmaðurinn sem hefur ekki gefið upp ákvörðun sína um áframhaldandi þingsetu. Hann hefur frest til klukkan 16 í dag til að gefa kost á sér fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavíkurkjördæmunum.

illugi-mynd.jpg
Auglýsing

Allir þing­menn, að und­an­skildum mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­anum Ill­uga Gunn­ars­syni, hafa nú gefið út opin­ber­lega hvort þeir hygg­ist gefa kost á sér áfram á næsta kjör­tíma­bili. Fram­boðs­frestur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum rennur út klukkan 16 í dag. Ill­ugi er nú staddur í Rio de Jani­ero í Bras­ilíu til að vera við­staddur Ólymp­íu­leik­ana. Hann var í beinni útsend­ingu á Face­book í gær þar sem hann var meðal ann­ars spurður hvort hann ætli að gefa kost á sér til áfram­hald­andi þing­mennsku, en hann svar­aði ekki spurn­ing­unni. Ill­ugi skip­aði fyrsta sæti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í síð­ustu kosn­ing­um. Ekki hefur náðst í Ill­uga und­an­farnar vik­ur. 

Öll for­ystu­sætin komin

Ólöf Nor­dal, inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar að bjóða sig fram í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Guð­laugur Þór Þórð­­ar­­son þing­maður til­kynnti í gær að hann sækt­ist eftir því að leiða list­ann í sömu kjör­dæmum og því er lík­legt að Ólöf og Guð­laugur leiði sitt­hvort kjör­dæm­ið. Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra vill leiða lista sjálf­stæð­is­manna í norð­aust­ur­kjör­dæmi, Har­aldur Bene­dikts­son þing­maður og Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, ætla að bít­ast um odd­vita­sætið í norð­vest­ur­kjör­dæmi, Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra, Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri, Árni Johnsen, fyrr­ver­andi þing­mað­ur, og Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hafa öll gefið kost á sér til að leiða list­ann í Suð­ur­kjör­dæmi. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, er svo í suð­vest­ur­kjör­dæmi. Þannig eru öll kjör­dæmin komin með fram­boð í odd­vita­sæt­in. Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, fyrr­ver­andi inn­­an­­rík­­is­ráð­herra og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæmi suð­­ur, gaf það út fyrir nokkru síðan að hún myndi hætta í póli­­tík nú í haust. 

Lilja, Karl og Þor­steinn vilja leiða Fram­sókn í Reykja­vík

Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, utan­rík­is­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, til­kynntu í gær og í morgun og þau ætli að gefa kost á sér til þess að leiða listana í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­un­um. Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur einnig gefið kost á sér í fyrsta sætið í Reykja­vík norð­ur. 

Auglýsing

Dag­setn­ing komin fyrir haust­kosn­ingar

Bjarni Bene­dikts­­son fjár­mála­ráð­herra og Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son for­sæt­is­ráð­herra lögðu til við stjórn­ar­and­stöð­una í gær að kosið verði til Alþingis 29. októ­ber næst­kom­andi. Tekið var vel í það og þessi dag­setn­ing því ákveð­in. Bjarni telur að hægt verði að klára helstu mál rík­­is­­stjórn­­­ar­innar fyrir þann tíma en þá þurfi að lengja það þing sem nú stendur yfir. Þá verður fjár­­laga­frum­varp ekki lagt fram fyrr en eftir kosn­­ing­­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None