Andri Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins. Frá þessu er greint í DV í dag. Hann tekur við starfinu af Fanneyju Birnu Jónsdóttur sem sagði því lausu í sumar eftir að gegnt því í eitt ár. Andri hefur starfað lengi hjá 365 og var í fyrravetur ritstjóri Íslands í dag. Sá þáttur hefur nú verið lagður niður eftir að hafa verið á dagskrá Stöðvar 2 um margra ára skeið. Þess í stað verða fréttir Stöðvar 2 lengdar og nýtt umhverfi þeirra kynnt á næstu dögum.
Mikil ólga hefur verið innan 365 undanfarnar vikur. Ástæðan er óánægja með störf Kristínar Þorsteinsdóttur, aðalritstjóra fréttastofu 365, og yfirstjórnar fyrirtækisins. Sú óánægja náði nýjum hæðum eftir að Pjetri Sigurðssyni, yfirmanni ljósmyndadeildar 365, var sagt upp störfumfyrir skemmstu, en Pjetur hafði kvartað undan Kristínu við fyrrverandi mannauðsstjóra fyrirtækisins vegna meints eineltis. Mannauðsstjórinn, Unnur María Birgisdóttir, setti af stað formlega athugun á ásökunum Pjeturs en þegar Kristín komst að því að slík athugun stæði yfir var hún stöðvuð af yfirstjórn 365 og Pjetur sendur í leyfi. Unnur María hætti störfum í byrjun júní, eftir að hafa starfað hjá fyrirtækinu í hálft ár.
Starfsmenn Fréttablaðsins og Vísis sendu frá sér yfirlýsingu vegna atburðanna í byrjun síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum Kjarnans stóðu nær allir starfsmenn Vísis og Fréttablaðsins sem ekki hafa fjölskyldutengsl við aðalritstjórann og náðist í, að yfirlýsingunni. Í yfirlýsingunni er uppsögn Pjeturs sögð óverðskulduð. Þar eru einnig hörmuð „óásættanleg vinnubrögð aðalritstjóra og yfirstjórnar fyrirtækisins í aðdraganda uppsagnar Pjeturs og við kynningu á henni til samstarfsmanna hans.“ Yfirlýsingin var send til allra fjölmiðla, Ingibjargar Pálmadóttur stjórnarformanns og aðaleiganda 365, Sævars Freys Þráinssonar forstjóra 365 og Kristínar, aðalritstjóra fyrirtækisins. Jakob Bjarnar Grétarsson, fréttamaður á Vísi, deildi frétt Kjarnans um yfirlýsinguna á Facebook og sagði í ummælum við hana að málið snúist „ekki bara um Pjetur, með fullri virðingu fyrir þeim ágæta vini mínum, frekar að hans mál sé kornið sem fyllir mælinn. Blasir það ekki við?“
Þónokkrir lykilstarfsmenn hafa þegar sagt upp störfum vegna ástandsins. Þeir eru Fanney Birna Jónsdóttir, Viktoría Hermannsdóttir, annar ritstjóri helgarblaðs Fréttablaðsins, og Gyða Lóa Ólafsdóttir, yfirmaður innblaðs Fréttablaðsins.