Bankamaður fer í kannabisbransann

Fyrrverandi bankamaður hjá Barclays sér mikil tækifæri í vaxandi löglegum kannabismarkaði í Bandaríkjunum.

kannabis
Auglýsing

Í Banda­ríkj­unum hefur fjár­fest­ing í kanna­bis­ræktun og þró­un lyfja úr kanna­bis auk­ist mik­ið, ekki síst í Was­hington-­ríki, þar sem kanna­bis­neysla eru stunduð lög­lega. Mörg lítil fyr­ir­tæki hafa orðið til á skömmum tíma, sem sinna rækt­un, sölu og dreif­ingu á kanna­bis­efn­um.

Einn þeirra nú hefur veðjað á mik­inn vöxt á þessar umdeild­u ­syllu – sem er ólög­leg í einu rík­inu en lög­leg í öðru, eins og ótrú­legt og það hljómar – er Roger Jenk­ins, fyrr­ver­andi banka­maður hjá Barclays bank­an­um breska. Hann var árum saman með hæst­laun­uðu banka­mönnum Barclays og hafði það verk­efni að safna fjár­munum frá Mið­aust­ur­löndum inn í eigna­stýr­ingu bank­ans, einkum sjóði sem reknir voru í sjálf­stæðum rekstr­ar­fé­lög­um. Þá var hann einnig í því að safna nýjum hlut­höfum á svæð­inu.

Auglýsing


Gerir út frá Kali­forníu

Hann hætti störfum árið 2009 og hefur lítið farið fyrir hon­um ­síðan þá, en nú hefur sjóður í hans eigu keypt land í Kali­forníu og hyggst hann ­stunda þar kanna­bis­rækt­un, lög­lega, og vinna efni til sölu. Bloomberg grein­ir frá því í dag, að Jenk­ins hafi verið í lyk­il­hlut­verki innan Barclays þeg­ar ­bank­inn náði í miklar fjár­hæðir frá umdeildum fjár­festum í Mið­aust­ur­lönd­um, ­sam­tals um 15,5 millj­arða Banda­ríkja­dala. Þessar fjár­fest­ingar björg­uðu fjár­hag ­bank­ans mitt í hrun­inu, haustið 2008, og gerðu það að verkum að bank­inn þurft­i ekki á rík­is­að­stoð að halda eins Royal Bank of Scotland, og raunar margir fleiri.

En af hverju er Jenk­ins nú far­inn að horfa í kanna­bis­efn­in? Á­stæðan er ör stækkun mark­aðar fyrir lyf sem unnin eru úr kanna­bis, og síð­an ­vax­andi þrýst­ingur í mörgum ríkjum Banda­ríkj­anna, þar sem notkun kanna­bis­efna er lög­leg til eigin nota. Talið er að mark­aður með lækn­inga­lyf sem unnin eru úr kanna­bis­efnum í Kali­forníu muni marg­fald­ast á næstu árum og verði eftir rúm­lega ­þrjú ár 2,6 millj­arða Banda­ríkja­dala, sam­an­borið við undir einn millj­arða nún­a. Á lands­vísu verður geir­inn síðan marg­falt stærri, og ef fleiri ríki lög­lega kanna­bis­neyslu hjá full­orðnum þá gæti orðið til risa­vax­inn iðn­aður sem Jenk­ins telur að þurfi fag­þekk­ingu frá fjár­fest­um.

Kanna­bis­sprotar

Eitt stærsta fyr­ir­tækið sem nú leiðir þróun í kanna­bis­fjár­fest­inum er Pri­vateer Hold­ings, sem er stað­sett í Seattle í Was­hington ­ríki. Millj­arða­mær­ing­ur­inn Peter Thiel hefur lagt því fyr­ir­tæki til 75 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða jafn­virði tæp­lega 10 millj­arða króna, en fyr­ir­tæk­ið er einkum að fram­leiða og skipu­leggja sölu á maríjúana, sem unnið er úr kanna­bis­plönt­um.

Ekki laus allra mála

Þó Jenk­ins sé far­inn að huga að kanna­bis­efn­unum þá er hann ekki laus undan rann­sókn breskra yfir­valda, sem eru með fjár­mögnun Barclays ­bank­ans, haustið 2008, til rann­sókn­ar. Málið snýst meðal ann­ars um hvort fjár­fest­ingar frá fjár­festum í Mið­aust­ur­löndum hafi verið lög­leg­ar. Rann­sókn S­FO, efna­hags­brota­deild­ar­innar í Bret­landi, hófst árið 2012 og kemur fram í um­fjöllun Bloomberg að líkur standi til þess að henni ljúki í lok árs. Með­al­ þess sem er verið að skoða, er fjár­fest­ing frá Al-T­hani fjöl­skyld­unni í Qatar í bank­an­um, haustið 2008. Í heild keypu fjár­festar 13 pró­sent hlut í bank­anum fyrir 7,5 millj­arða punda, eða sem nemur um 1.300 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None