Lestur allra prentmiðla landsins nema Morgunblaðsins dalar

Morgunblaðið er eini prentmiðillinn sem tapar ekki lestri í júlí.
Morgunblaðið er eini prentmiðillinn sem tapar ekki lestri í júlí.
Auglýsing

Eini prent­mið­ill lands­ins sem tap­aði ekki les­endum í síð­asta mán­uði var Morg­un­blað­ið, sem er gefið út sex sinnum í viku. Lestur hans stóð jókst um 0,3 pró­sentu­stig á milli mán­aða og er nú 28,1 pró­sent. Lestur blaðs­ins hefur samt sem áður dreg­ist mikið saman á und­an­förnum árum, en hann mæld­ist 42 pró­sent í byrjun árs 2009. Síðan þá hefur lestur þessa stærsta áskrift­ar­blaðs  þjóð­ar­innar minnkað um 33 pró­sent. Þetta kemur fram í nýj­ustu könnun Gallup á lestri prent­miðla.

Frétta­blað­ið, sem dreift er frítt í 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unn­ar, heldur áfram að tapa lestri. Nú er svo komið að 47,6 pró­sent Íslend­inga lesa frí­blað­ið. Lestur blaðs­ins fór undir 50 pró­sent í fyrsta sinn frá árinu 2002 í nóv­em­ber í fyrra. Það er fyrst og fremst yngra fólk sem er hætt að lesa Frétta­blað­ið. Í síð­asta mán­uði fór lestur þess hjá fólki á aldr­inum 18-49 ára niður í 40,1 pró­sent. Fyrir sex árum síðan lásu um 64 pró­sent allra í ald­urs­hópnum Frétta­blað­ið. Lest­ur­inn hefur því dreg­ist saman um tæp 38 pró­sent á nokkrum árum. 

Lestur Frétta­tím­ans, sem kemur út í frídreif­ingu tvisvar í viku, heldur áfram að dala og mælist nú 33,2 pró­sent. Hann hefur aldrei mælst lægri síðan að blaðið hóf að koma út. DV, sem kemur út tvisvar í viku, tapar mestum lestri allra á milli mán­aða, eða 0,9 pró­sentu­stig­um. Nú lesa 8,7 pró­sent lands­manna blað­ið. Líkt og hjá Frétta­blað­inu þá er það fyrst og síð­ast fólk undir fimm­tugu sem er að hætta að lesa DV. Í síð­asta mán­uði lásu 4,2 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 18-49 ára það. 

Auglýsing

Við­skipta­blað­ið, áskrift­ar­blað sem kemur út einu sinni í viku, er nú lesið af 10,2 pró­sent lands­manna. Lestur þess hefur þó dalað umtals­vert á þessu ári. Í lok árs 2015 lásu 13,4 pró­sent lands­manna blað­ið. Lest­ur­inn hefur því minnkað um tæpan fjórð­ung síðan þá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None