Kristján Kristjánsson hefur verið ráðinn nýr umsjónarmaður þáttarins Sprengisands á Bylgjunni. Hann tekur við af Páli Magnússyni, sem stjórnaði þættinum til skamms tíma eftir að Sigurjón M. Egilsson hætti. Páll sækist nú eftir því að verða efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Kristján starfaði lengi sem blaða- og fréttamaður, lengst af hjá RÚV. Hann var svo upplýsingafulltrúi Landsbankans þar til í fyrra og síðan þá hefur hann sinnt sjálfstæðri ráðgjöf, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá 365. Hann hefur einnig starfað hjá forsætisráðuneytinu.
Kristján tekur við þættinum strax og verður fyrsti þátturinn hans næsta sunnudag.
Auglýsing