Skólastjórar í grunnskólum Reykjavíkur lýsa yfir verulegum áhyggjum af fjárhagslegri stöðu grunskólanna í borginni í sameiginlegri yfirlýsingu sem þeir undirrituðu allir og sendu fjölmiðlum nú í kvöld.
Skólastjórarnir segja að fjárhagsleg staða hafi leitt til skertrar þjónustu við nemendur. „Borgaryfirvöld hafa skorið umtalsvert niður til grunskólanna á síðustu átta árum sem hefur orðið til þess að rekstur skólanna er nú algjörlega óviðráðanlegur.“
Þá segja skólastjórarnir að vegna ákvarðana borgaryfirvalda geti grunnskólarnir í Reykjavík ekki lengur boðið nemendum sínum upp á sambærilega þjónustu og nágrannasveitarfélögin geri.
„Skólastjórar grunnskóla í Reykjavík krefjast þess að pólitískt kjörnir fulltrúar forgangsraði nú þegar í þágu barnanna í borginni, enda verður lögboðnu skólastarfi ekki sinnt miðað við núverandi aðstæður.“