Fjórir stjórnendur LBI, eignarhaldsfélags utan um eignir gamla Landsbankans, geta fengið samtals mörg hundruð milljónir króna í bónusgreiðslur hver um sig á komandi árum ef vel gengur að koma eignum félagsins í verð. Á meðal fjórmenninganna eru Kolbeinn Árnason, sem hætti sem framkvæmdastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) fyrr á þessu ári og settist í stjórn LBI. Þar er líka Ársæll Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LBI. Hinir tveir mennirnir sem fá slíka bónusa eru Richard Katz, stjórnarformaður LBI, og Christian Anders Digemose, danskur ráðgjafi og lögmaður sem starfað hefur fyrir kröfuhafa föllnu íslensku bankanna á undanförnum árum. Frá þessu er greint í DV í dag.
Þar segir einnig að Kolbeinn fái 23 milljónir króna í þóknun á ári fyrir að sitja í stjórn LBI fyrir utan væntanlegar bónusgreiðslur. Þau laun miða við að hann starfi fyrir stjórnina að hámarki 40 daga á ári. Það þýðir að Kolbeinn fær 575 þúsund krónur fyrir hvern dag sem hann starfar fyrir stjórnina ef hann vinnur hámarksdagafjölda.
Í DV segir að gangi tilteknar forsendur eftir sem bónuskerfið grundvallist á gætu heildarbónusgreiðslur til þessara fjögurra æðstu stjórnenda félagsins hæglega hlaupið samtals á milljörðum króna. Stærstu hluthafar LBI eru bandarísku vogunarsjóðirnir Davidson Kempner og Anchorage Capital.
1,5 milljarður hjá Kaupþingi
Greint var frá því í DV í síðustu viku að um tuttugu starfsmenn eignarhaldsfélagsins Kaupþings, sem tók við hlutverki slitabús Kaupþings að loknum nauðasamningum bankans í lok árs í fyrra, geta fengið samtals tæplega 1.500 milljónir króna í bónusgreiðslur ef markmið um hámörkum á virði óseldra eigna félagsins næst. Bónusgreiðslurnar eiga að greiðast út ekki síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eign Kaupþings er 87 prósent hlutur í Arion banka, viðskiptabanka sem starfar að mestu á íslenskum markaði og var endurreistur af íslenska ríkinu með íslenskum innstæðum.
Bónusgreiðslurnar sem stjórnendur LBI geta fengið ef vel gengur að selja eignir félagsins eru mun hærri en þær sem starfsmenn Kaupþings eiga von á að fá.