Auglýsingastofur og birtingahús vilja RÚV áfram á auglýsingamarkaði

Stærstu auglýsingastofur landsins og tvö birtingahús segja það bæði auglýsendum og neytendum í hag að breytingar á fjölmiðlamarkaði feli ekki í sér að taka RÚV af auglýsingamarkaði.

rúv
Auglýsing

Ef RÚV hverfur af aug­lýs­inga­mark­aði mun það skerða mögu­leika aug­lýsenda á að ná til neyt­enda. Þetta segja Sam­band íslenskra aug­lýs­inga­stofa, Birt­inga­húsið og Medi­acom, sem hafa sam­an­lagt um helm­ings­mark­aðs­hlut­deild á íslenskum aug­lýs­inga­mark­að­i. 

SÍA eru sjö stærstu aug­lýs­inga­stofur lands­ins, og Birt­inga­húsið og Medi­acom þjón­usta mörg af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins með aug­lýs­inga­birt­ing­ar. Þau hafa sent frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu í kjöl­far umræð­unnar um að RÚV verði tekið af aug­lýs­inga­mark­aði, og að breyt­ingar verði gerðar á lög­gjöf til að jafna sam­keppn­is­stöðu fjöl­miðla. Umræð­unni hefur ekki síst verið haldið á lofti af einka­reknum ljós­vaka­miðlum hér á landi, sem meðal ann­ars slökktu á útsend­ingum sínum í sjö mín­útur síð­asta fimmtu­dags­kvöld. 

„Sam­an hafa sjón­varps- og útvarps­stöðvar RÚV afger­andi mesta viku­lega dekkun ljós­vaka­miðl­anna og gæti brott­hvarf þess­ara stöðva af aug­lýs­inga­mark­aði orðið til þess að neyt­endur verði af mik­il­vægum upp­lýs­ingum um vörur og þjón­ust­u,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá SÍA, Birt­inga­hús­inu og Medi­acom. Innan SÍA eru sjö stærstu aug­lýs­inga­stofur lands­ins, og Birt­inga­húsið og Medi­acom þjón­usta mörg af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins með aug­lýs­inga­birt­ing­ar. 

Auglýsing

„Að auki gegna sjón­varps­aug­lýs­ingar mik­il­vægu hlut­verki í vöru­merkja- og ímynd­ar­upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja. Það yrði erf­ið­ara fyrir þau að byggja upp virði vöru­merkja sinna þegar þau ná ekki augum og eyrum jafn­margra. Hætta er á að dregið yrði úr fram­leiðslu sjón­varps­aug­lýs­inga sem hefði skað­leg áhrif á fyr­ir­tæki og ein­stak­linga sem hafa tekjur af aug­lýs­inga­fram­leiðslu.“ 

Það sé hagur íslenskra neyt­enda að aug­lýsendur nái til þeirra með hag­kvæmum hætti en ekki síður að næg fjöl­breytni ríki á aug­lýs­inga­mark­aði og eðli­leg sam­keppni þrí­fist. Sjón­varp og útvarp séu enn áhrifa­miklir aug­lýs­inga­miðlar á Íslandi, en fjöl­miðlaum­hverfið sé að taka hröðum breyt­ingum og það hafi áhrif á rekstr­ar­um­hverfi allra sem með beinum eða óbeinum hætti hafi tekjur af aug­lýs­ing­um. „Sam­keppni frá erlendum miðlum er og verður þeim íslensku erfið og mik­il­vægt að leitað verði leiða til þess að auð­velda íslenskum fjöl­miðlum að dafna. Það er aug­lýsendum og neyt­endum í hag að það verði gert án þess að taka sjón­varps- og útvarps­stöðvar RÚV af aug­lýs­inga­mark­að­i.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None