Risakönnun sýnir forskot Hillary Clinton meðal kjörmanna

Clinton Trump
Auglýsing

Nú þegar níu vikur eru til for­seta­kosn­inga í Banda­ríkj­unum hefur Hill­ary Clinton sterka stöðu í mörgum bar­áttu­ríkjum og nokkrum ríkjum þar sem Repúblikana­flokk­ur­inn hefur alltaf verið sterk­ur. Þetta gefur henni mikið for­skot meðal kjör­manna­ráðs­ins, sam­kvæmt nýrri könnun frá Was­hington Post, sem birt var í morg­un. 

Könnun Was­hington Post var gerð í sam­starfi við Sur­veyMon­key og er stærsta könnun sem blaðið hefur nokkurn tím­ann ráð­ist í. Könn­unin var gerði í öllum 50 ríkjum Banda­ríkj­anna og byggir á svörum frá yfir 74 þús­und skráðum kjós­end­um. 

Meðal þess sem könn­unin sýnir er einn stærsti veik­leik­inn í kosn­inga­bar­áttu Don­alds Trump, fram­bjóð­anda Repúblikana­flokks­ins. Það er að stuðn­ingur við hann, sem fram­bjóð­anda repúblikana, er minni en dæmi eru um hjá háskóla­mennt­uð­um, hvítum kjós­end­um, sér­stak­lega kon­um. Hvít­ir, háskóla­mennt­aðir hafa verið tryggir kjós­endur repúblik­ana í síð­ustu kosn­ingum en Clinton hefur for­skot á Trump meðal þess­ara kjós­enda víð­ast hvar um land­ið, þar með talið í ríkjum sem eru yfir­leitt alltaf örugg repúblikana-­rík­i. 

Auglýsing

Könn­unin kemur í kjöl­far ann­arra kann­anna sem hafa sýnt að bilið í stuðn­ingi milli fram­bjóð­end­anna tveggja fari minnk­andi. Clinton var komin með 8-10 pró­senta for­skot í kjöl­far lands­funda flokk­anna í sumar en nú hefur það bil minnkað veru­lega. 

Was­hington Post segir að margt í þeirra nið­ur­stöðum sé í sam­ræmi við aðrar kann­an­ir, en ekki allt. Trump hefur örlítið for­skot í tveimur bar­áttu­ríkjum – Ohio og Iowa – og er nálægt því í Wiscons­in, Penn­syl­vaniu og Michig­an. Þrjú síð­ast­nefndu ríkin hafa kosið demókrata í síð­ustu sex kosn­ing­um. Á sama tíma er hann hins vegar í vand­ræðum í ríkjum sem repúblikanar hafa unn­ið, og ríkjum sem hann yrði að vinna í ef hann ætti að eiga mögu­leika á for­seta­stóln­um. Meðal þess­ara ríkja eru Arizona, Georgia og Texa­s. 

Clinton leiðir meðal kjör­manna­ráðs­ins

Í Banda­ríkj­unum velur kjör­manna­ráð (e. Elect­oral Col­lege) for­seta form­lega. Öll ríki velja full­trúa í þetta ráð og hvert ríki fær jafn marga full­trúa og það hefur á þingi. Að auki fær District of Col­umbia, eða Was­hington-­borg, jafn marga full­trúa og það ríki sem hefur fæsta full­trúa þar sem borgin til­heyrir engu ríki. Fjöldi þeirra full­trúa er núna þrír, sem gerir 538 full­trúa í kjör­manna­ráð­inu. 270 full­trúa þarf til að bera sigur úr být­u­m. 

Sam­kvæmt könnun Was­hington Post hefur Hill­ary Clinton 4% for­ystu eða meira í 20 ríkjum og Was­hington-­borg. Sam­tals eru það 244 kjör­menn, eða 26 færri en þarf til að vinna. Á sama tíma er Trump einnig með 4% eða meiri for­ystu í 20 ríkj­um, en þau ríki gefa aðeins 126 kjör­menn. Í 10 ríkj­unum sem eftir standa eru 168 kjör­menn í boði, og þar hefur hvor­ugur fram­bjóð­and­inn 4% for­ystu eða meira. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None