Brotist inn í tölvu Sigmundar og hann eltur í útlöndum

Tilraunir voru gerðar til að brjótast inn í tölvu forsætisráðherra og hann var eltur í útlöndum af erlendum kröfuhöfum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ávarpaði haustfund miðstjórnar Framsóknarflokksins í dag.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist hafa verið eltur á ferðum sínum erlendis af kröfu­höfum í bú föllnu bank­anna á meðan hann var for­sæt­is­ráð­herra. Einnig seg­ist hann hafa heim­ildir fyrir því að brot­ist hafi verið inn í tölv­una hans. Honum hafi jafn­vel borist boð um að hitta full­trúa kröfu­hafa í ein­rúmi á afskekktum stöðum svo hægt væri að leysa mál­in. Frá þessu greindi Sig­mundur í ræðu sinni á haust­fundi mið­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins sem fram fer í Hofi á Akur­eyri í dag.

Við eft­ir­grennslan Kjarn­ans stað­festi Sig­mundur Davíð það sem hann full­yrti í ræðu sinni um að reynt hafi verið að brjót­ast inn í tölv­una hans. „Ég veit að það var brot­ist inn í tölv­una hjá mér,“ sagði Sig­mundur Davíð í ræð­unni. Hann hafi látið yfir­fara hana hjá örygg­is­full­trúa í stjórn­ar­ráð­inu og þar hafi fund­ist merki um að reynt hafi verið að brjót­ast inn.

Í ávarpi hans á fund­inum kom fram að vegna þessa hafi hann gripið til þess ráðs að hafa svo­kall­aðan „svartan kafla“ í ræðu sem hann hélt á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í fyrra. Svarti kafl­inn var kafli sem eng­inn fékk að lesa, ekki einu sinni hans helstu ráð­gjaf­ar, vegna þess að þar var yfir­lýs­ingin um að skattur yrði settur á slita­bú­in. Sig­mundur hafi ekki viljað varpa þeim bagga á nokkurn mann að þurfa að vita af þessu né láta það spyrj­ast út, enda um mikla hags­muni að ræða.

Auglýsing

Jóhannes Þór Skúla­son, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íð, segir í sam­tali við Kjarn­ann að hann hafi sjálfur verið vitni af þessu á ferðum sínum með Sig­mundi. Hinir og þessir hafi dúkkað upp, jafn­vel and­lit sem tölu­vert hefur verið talað um í fjöl­miðl­um, hafi viljað ná af honum tali með ýmsum ráðum og eftir ýmsum leið­um. Sig­mundur fjall­aði sér­stak­lega um ferðir sínar í London og Norð­ur­-Da­kóta þar sem kröfu­hafar hafi setið um fyrir hon­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None