Þingmaður segir samskiptin rót vandans hjá Pírötum

Ásta Guðrún Helgadóttir er þingmaður Pírata og verður í efsta sæti framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Ásta Guðrún Helgadóttir er þingmaður Pírata og verður í efsta sæti framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Auglýsing

Ásta Guð­rún Helga­dótt­ir, þing­maður Pírata og odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suð­ur, segir próf­kjör flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og ásak­anir flokks­manna á hendur Birgittu Jóns­dóttur helg­ast af sam­skipta­bresti. Ásta Guð­rún var gestur Helga Seljan í Viku­lok­unum á Rás 1 í dag.

Birgitta er sögð hafa hringt í áhrifa­fólk í Pírötum á Norð­vest­ur­landi eftir að úrslit í fyrra próf­kjör­inu þar voru ljós og kraf­ist þess að Gunn­ari Ingi­berg Guð­mynds­syni yrði komið í fyrsta eða annað sætið á fram­boðs­list­an­um. Úrslit pró­kjörs­ins voru síðar kærð vegna ásak­ana um smölun til fylgis við ákveðna fram­bjóð­end­ur. Kæran hafði hins vegar engin áhrif vegna þess að hún átti ekki við. Úrslit­unum var þá hafnað í stað­fest­ing­ar­kosn­ingu og nýtt próf­kjör hald­ið.

Birgitta hefur þver­tekið fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á úrslit próf­kjörs­ins eða skipað fram­bjóð­endum að víkja fyrir Gunn­ari Ingi­berg. Ágúst Smári Beaumont, sem situr í kjör­dæma­ráði Pírata í kjör­dæm­inu, segir í sam­tali við Frétta­tím­ann að Birgitta hafi hringt í sig og lýst yfir óánægju sinni með list­ann. „[...] og sagði meðal ann­ars að hún þekkti ekk­ert þennan Þórð,“ er haft eftir hon­um. „Kjarni sam­tals­ins var sá að hún sigar mér bein­línis í það verk­efni að fá aðra fram­bjóð­endur til að færa sig neðar svo það væri hægt að koma Gunnar Ingi­berg Guð­munds­syni í hærra sæti á list­an­um.“

Auglýsing

Ásta Guð­rún segir Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi ein­fald­lega hafa mis­skilið Birgittu. Þetta séu sam­skipta­vanda­mál. „Birgitta er stór fígúra í Píröt­u­m,“ sagði Ásta Guð­rún í Viku­lok­un­um. Fólk hafi túlkað það þannig að hún mæli lög. „Hún hefur hins vegar ekk­ert vald­boð. Þetta er brestur á því hvernig við tölum við hvort annað og á hvaða for­send­um.“

Ásta Guð­rún við­ur­kennir að þessi próf­kjör í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hjá Pírötum hafi klúð­ur. Hún vonar að fólk innan flokks­ins geti sæst og kom­ist yfir þetta. „Við verðum að gefa okkur tæki­færi til að anda og læra af mis­stök­un­um,“ sagði hún.

Sam­skipta­vanda­mál hafa áður komið upp í Pírötum. Í febr­úar kall­aði þing­flokk­ur­inn, sem skiptaður er Ástu Guð­rúnu, Birgittu og Helga Hrafni Gunn­ars­syni, til vinnu­stað­arsál­fræð­ing til að leysa úr sam­skipta­örð­ug­leikum á milli þeirra. Í yfir­lýs­ingu sem var send út við þetta til­efni sagði að álagið á þessa fáu kjörnu full­trúa flokks­ins hafi marg­fald­ast sam­hliða því að flokk­ur­inn hafi vaxið og dafn­að. Í febr­úar mæld­ist fylgi Pírata um og yfir 40 pró­sent og var hann þá langstærsti flokk­ur­inn í skoð­ana­könn­un­um.

Upp­fært kl. 16:16 – Rang­hermt var að kæra á úrslit fyrra próf­kjörs­ins hafi orðið til þess að kosið var að nýju. Hið rétta er að kæran hafði engin áhrif. Hins vegar var úrslitum próf­kjörs­ins hafnað í svo­kall­aðri stað­fest­ing­ar­kosn­ingu. Beðist er vel­virð­ingar á þessum mis­tök­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None