„Ævarandi skömm“ alþjóðasamfélagsins

Forseti Frakklands segir að alþjóðasamfélagið þurfi að stilla til friðar í borgarstríðinu í Sýrlandi. Annað verði því til ævarandi skammar.

francois_hollande.jpg
Auglýsing

Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, sagði í ávarpi sínu á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í gær að alþjóða­sam­fé­lagið þyrfti að stilla til friðar í borg­ar­stríð­inu í Sýr­landi. Annað yrði því til „ævar­andi skammar“ og nauð­syn­legt væri að taka höndum sam­an, og grípa inn í atburða­rás­ina. 

Hollande, sem flutti ávarpið með til­finn­inga­þrungnum hætti, sagði að skelf­ingin í land­inu væri nán­ast ólýs­an­leg. „Nóg er nóg,“ sagði Hollande. Efna­vopnum væri beitt, sprengjum varpað á lestir hlaðnar hjálp­ar­gögn­um, óbreyttir borgar væru að strá­felldir í loft­árásum og hern­aði á jörðu niðri. 

Nauð­syn­legt væri að fá fleiri þjóðir að hjálp­ar­starfi í land­inu, og auka þung­ann í póli­tískum við­ræðum sem geti leitt til frið­ar. 

Auglýsing



Barack Obama Banda­ríkja­for­seti tal­aði fyrir því að borg­ara­stríðið í Sýr­landi yrði ekki leyst með hern­aði, heldur með póli­tískum við­ræð­um. Þær yrðu að vega þyngst, og þar geti margar þjóðir - stórar og smáar - lagt mikið af mörk­um. En hann lagði mikla áherslu á að Banda­ríkin væru í lyk­il­hlut­verki, og Rússar einnig. 

John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, átti í gær fund með Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, um ástandið í Sýr­landi eftir að vopna­hlé fór þar út um þúfur í dag. Kerry sagði við frétta­menn að mögu­leiki á vopna­hléi væri enn til stað­ar, eftir fund­inn. 

Áður en borg­ara­stríðið í Sýr­landi braust út bjuggu 22,5 millj­ónir  í land­inu, en talið er að meira en helm­ingur þeirra, eða um 12 millj­ón­ir, séu nú á flótta, ýmist utan eða innan lands­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None