vigdis_15905056106_o.jpg
Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþing­is, segir að skýrsla meiri­hluta nefnd­ar­inn­ar, um einka­væð­ingu bank­anna hina síð­ari, verði að form­legri þing­skýrslu á morgun þegar hún verði tekin út úr fjár­laga­nefnd. Það sé orð­heng­ils­háttur hjá for­seta þings­ins, Ein­ari K. Guð­finns­syni að segja skýrsl­una ekki vera skýrslu í skiln­ingi þing­skapa Alþing­is. „Það er verið að hanga í ein­hverjum tækni­legum atriðum en ekki efn­is­leg­um,“ sagði Vig­dís í morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morg­un. 

Einar sagði í gær að það væri afstaða hans að sam­an­tekt þeirra Vig­dísar og Guð­laugs Þórs Þórð­ar­son­ar, vara­for­manns nefnd­ar­inn­ar, sé ekki skýrsla í skiln­ingi þing­skapa, „enda hefur sam­an­tektin ekki hlotið form­lega með­ferð í fjár­laga­nefnd í sam­ræmi við ákvæði þing­skapa. Ég lít því svo á að skýrslan sé enn til umfjöll­unar í fjár­laga­nefnd og hafi ekki hlotið afgreiðslu nefnd­ar­inn­ar.“ 

Vig­dís gaf ekki mikið fyrir orð Ein­ars. „Mikið hefur aum­ingja mað­ur­inn slæma ráð­gjafa, því haldið þið að ég sem þing­mað­ur­ og Guð­laugur Þór vara­for­maður fari að vinna eitt­hvert mál í þing­inu sem er gegn þing­sköp­um?“ sagði hún í morg­un. 

Auglýsing

Þá beindi hún sjónum sínum að þing­sköp­unum sem hún gagn­rýndi mjög, þótt hún seg­ist ekki hafa starfað í mót­sögn við þau. „Ég veit að for­sætis­nefnd þings­ins er að fá ráð­gjöf frá þeim að­ilum sem hafa verið að breyta þing­skap­ar­lögum hér und­an­far­in ár. Sem ég tel að hafi verið gert á þann hátt að það er ekki nógu lög­fræði­lega gott. Það er svona ama­töra­yf­ir­bragð á því. Lík­lega þiggur for­sætis­nefnd þings­ins ráð frá þessum að­il­um, ég veit það ekki. En þing­menn hafa fullt frelsi til­ ­at­hafna, fullt frelsi til að gera það sem þeir vilja inn­an­ ­þings­ins. Ef það verður fram­tíðin að for­seti þings­ins ætl­ar að fara að setja þing­menn niður eða veita þeim eitt­hvað til­tal, þá erum við ekki lengur búandi í lýð­ræð­is­rík­i.“

Hún sagð­ist halda að Einar væri að bregð­ast við æsingi í þing­inu og hafi lík­lega sagt meira en hann hafi ætl­að. 

Þing­sköpum breytt af þverpóli­tískri nefnd

Vig­dís hefur gagn­rýnt breyt­ingar á þing­sköpum áður, og sagði í morgun að það væri „ama­töra­yf­ir­bragð“ á breyt­ing­unum sem gerðar hafi verið á þing­skap­ar­lögum und­an­farin ár og þær séu ekki nógu „lög­fræði­lega“ góð­ar. 

Breyt­ing­arnar sem gerðar hafa verið á þing­sköpum und­an­farin ár hafa að mestu komið frá tveimur þverpóli­tískum nefnd­um. Sjá má á vef Alþingis að meðal þeirra sem komu á fundi þing­skapa­nefndar vet­ur­inn 2010 til 2011 voru Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis og Þór­hallur Vil­hjálms­son, yfir­lög­fræð­ingur Alþing­is. 

Vig­dís sak­aði einnig starfs­menn Alþingis um það á ný í morgun að hafa lekið upp­lýs­ingum um hana til fjöl­miðla þegar greint var frá bréfi rík­is­end­ur­skoð­anda til for­seta Alþingis þar sem kvartað var undan starfs­háttum henn­ar. Hún segir að þess vegna hafi hún haft áhyggjur af því að sam­an­tekt hennar nú læki út, af því að hún hafi fengið starfs­menn Alþingis til að próf­arka­lesa hana. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None