Framboð Davíðs kostaði tæpar 28 milljónir

Framboð Davíðs Oddssonar kostaði tæpar 28 milljónir króna, og rúmlega 11 milljónir komu frá honum sjálfum. Útgerðarfélög og Kaupfélag Skagfirðinga eru meðal þeirra sem gáfu honum hámarksframlag.

Davíð Oddsson
Auglýsing

Fram­boð Dav­íðs Odds­sonar til for­seta Íslands kost­aði tæp­lega 28 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í útdrætti úr upp­gjöri hans, sem hann hefur skilað til Rík­is­end­ur­skoð­un­ar. Það er hæsta upp­hæðin sem eytt var í kosn­inga­bar­áttu, af þeim sem eru búnir að skila inn upp­gjöri sínu. Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, eyddi um 25 millj­ónum króna í sitt fram­boð

Hann fékk ríf­lega átta millj­ónir króna frá lög­að­ilum og einnig frá ein­stak­ling­um. Ríf­lega ell­efu millj­ónir króna komu frá honum sjálf­um. 400 þús­und krónur komu frá eig­in­konu hans, Ástríði Thoraren­sen. 

Meðal ann­arra sem gáfu Davíð hámarks­fram­lagið sem ein­stak­lingar mega gefa, 400 þús­und krón­ur, eru Þórólfur Gísla­son kaup­fé­lags­stjóri í Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga, og Krist­ján Lofts­son útgerð­ar­mað­ur. Hann fékk tæp­lega 3,5 millj­ónir frá 43 öðrum ein­stak­ling­um, sem gáfu minna en 200 þús­und krón­ur. 

Auglýsing

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga gaf honum einnig hámarks­fram­lagið 400 þús­und krón­ur, það gerðu líka Bygg­inga­fé­lag Gylfa/G­unn­ars, Kjarna­fæði, Krossa­nes eign­ir, Lands­prent, Lýsi, Orbis Invest, Still­ing og Brekku­hús ehf. 

Þá er tals­vert um útgerð­ar­fé­lög í hópi þeirra sem gáfu honum hámarks­upp­hæð, Ein­hamar Seafood, Ísfé­lag Vest­manna­eyja, Rammi hf, Þor­björn hf og ÞR ehf, eru meðal þeirra. ÍSAM, Íslensk Amer­íska, gaf einnig 400 þús­und krón­ur, en félagið er í eigu sömu aðila og Ísfé­lag­ið, sem einnig eru stærstu eig­endur Morg­un­blaðs­ins, þar sem Davíð er rit­stjóri. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None