Ísland er í 27. sæti á listanum yfir samkeppnishæfni þjóða samkvæmt nýútkominni skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum), The Global Competitiveness Report 2016-2017. Ísland færist upp um tvö sæti frá því í fyrra. Alls tóku 138 þjóðríki þátt í rannsókn ráðsins að þessu sinni.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu vegna útkomu skýrslunnar. „Vísitala Alþjóða efnahagsráðsins er virtur mælikvarði á efnahagslíf þjóða víða um heim. Vísitalan er víðtæk og endurspeglar þá þætti sem segja til um framleiðni þjóða og vaxtarmöguleika þeirra. Rannsóknin byggir á opinberum upplýsingum og könnun sem gerð er meðal stjórnenda í atvinnulífinu. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er samstarfsaðili Alþjóðaefnahagsráðsins á Íslandi og sá um framkvæmd könnunarinnar hér á landi,“ segir í fréttatilkynningunni.
Áttunda árið í röð er Sviss í fyrsta sæti sem samkeppnishæfasta efnahagslíf heimsins. Mjótt er þó á munum Sviss, Singapore og Bandaríkjanna. Þar á eftir koma Holland og Þýskaland sem hafa skipt um sæti síðan í fyrra. Einkunn Bretlands er reiknuð áður en landið tók hina frægu ákvörðun sína um Brexit. Indland er það land sem risið hefur hraðast, hækkar um 16 sæti síðan í fyrra og er nú í 39. sæti.
Svíþjóð er í sjött sæti, hæst Norðurlanda. Finnland er í tíunda sæti, Noregur í ellefta og Danmörk í tólfta sæti.
Nánar verður fjallað um skýrsluna og greininguna á Íslandi á næstu misserum, á vef Kjarnans.