46 manns var sagt upp í Arion banka í dag. Um hópuppsögn er að ræða sem þarf að tilkynna til Vinnumálastofnunar sem slíka. Samkvæmt upplýsingum Kjarnans dreifist fjöldinn á margar deildir innan bankans. Um er að ræða fjölmennustu hópuppsögn sem átt hefur sér stað á árinu 2016.
Alls hafa verið tilkynntar fimm hópuppsagnir til Vinnumálastofnunar það sem af er ári. Síminn hefur tvívegis tilkynnt slíka og sagt upp samtals 37 manns. Þá var 28 manns sem störfuðu hjá fiskvinnslufyrirtæki sagt upp í febrúar og 38 manns í sama geira sagt upp í mars. Í ágúst síðastliðnum var síðan tilkynnt um að öllu starfsfólki Plain Vanilla, 36 manns, hefði verið sagt upp störfum og að fyrirtækinu yrði lokað.
Í tilkynningu frá Arion banka segir að í hópi þeirra sem hafi verið tilkynnt um starfslok í dag hafi 27 starfað í höfuðstöðvum bankans en 19 í öðrum starfsstöðvum. Alls munu um 840 manns starfa hjá bankanum eftir uppsagnirnar. Vinnumálastofnun hefur verið greint frá þeim.
Þar segir enn fremur: „Ýmislegt í umhverfi bankans kallar á breytingar á starfseminni. Veigamest er sú staðreynd að fjármálaþjónusta tekur umtalsverðum breytingum um þessar mundir. Viðskiptavinir kjósa í mun ríkari mæli að nýta sér sjálfsafgreiðslulausnir eins og bankaapp, netbanka og hraðbanka í stað samsvarandi útibúaþjónustu. Notkun appsins og hraðbanka í útibúum bankans hefur margfaldast á undanförnum árum. Vegna þessa hefur spurn eftir afgreiðslu í útibúum bankans dregist saman um þriðjung á tveimur árum. Þessi þróun kallar á breytingar og eru samhliða gerðar skipulagsbreytingar í útibúum bankans, án þess þó að útibúum fækki.
Breytingarnar nú eru liður í víðtækari aðgerðum til hagræðingar í rekstri bankans. Þrátt fyrir umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir undanfarin ár og endurskipulagningu starfseminnar hefur fjöldi starfsmanna haldist nokkuð stöðugur vegna yfirtöku á öðrum fjármálafyrirtækjum og vegna aukinna umsvifa. Fækkun starfsfólks er þungbært skref að stíga en nauðsynlegt í ljósi breyttra áherslana í starfsemi bankans og ytri aðstæðna.“