Kjarninn ætlar að gefa út bók eftir Hrafn Jónsson

Vinsælasti pistlahöfundur Kjarnans frá upphafi hefur greint þjóðfélagsumræðuna með beittum hætti allt þetta kjörtímabil. Og nú ætlum við að koma honum á prent með því að safna fyrir útgáfunni á Karolina Fund.

krummi
Auglýsing

Kjarn­inn miðlar ehf. til­kynnir um útgáfu á pistla­safni Hrafns Jóns­sonar „Út­sýnið úr fíla­beins­turn­inum - Saga af kjör­tíma­bil­i“. Söfnun fyrir útgáf­unni, og sala á bók­inni, stendur nú yfir á Karol­ina Fund. Hægt er að leggja henni lið og eign­ast ein­tak hér. Náist sett mark­mið er stefnt að útgáfu bók­ar­innar í kringum kom­andi kosn­ing­ar.

Hrafn Jóns­son (Krummi) eyddi gullár­unum sínum í að vera lat­ur, feitur og óör­ugg­ur. Eina skiptið sem hann hafði eign­ast pen­inga var eftir að hann varð fyrir stræt­is­vagni og fékk miska­bæt­ur. Allt var þetta partur af hans púp­un­ar­ferli og þegar Hrafn hóf að skrifa pistla fyrir Kjarn­ann í byrjun árs 2014 braust hann loks­ins út og breiddi út væng­ina eins og háruga, föla og sífellt verr tennta fiðr­ildið sem hann er.

Auglýsing


Pistl­arnir hafa notið gríð­ar­legra vin­sælda. Í þeim fjallar hann á hæðin hátt - en með beittum und­ir­tón - um þjóð­fé­lags­um­ræðu hvers tíma.

Pistlasafn Hrafns Jónssonar gæti litið einhvern veginn svona út.Í ljósi þess að óvissu­tímar eru fram undan í íslenskum stjórn­málum þá var það mat aðstand­enda verk­efn­is­ins að ekki verði hægt að treysta því að Inter­netið verði hér til fram­búð­ar.

Þess vegna þarf að koma pistlum Hrafns um þjóð­fé­lags­mál, sem eru nú á þriðja tug þús­und orð, á prent. Aðeins þannig tryggjum við að pistl­arnir endi í bundnu máli á Lands­bóka­safn­inu. Og Hrafni inn­göngu i Rit­höf­unda­sam­band Íslands nú þegar búið er að reka hann úr Tel Aviv norð­urs­ins, Plain Vanilla.

Kjarn­inn ætlar að koma slíku riti út í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga svo Íslend­ingar geti fengið heild­rænt yfir­lit yfir þá atburða­rás sem átt hefur sér stað á þessu kjör­tíma­bili, séð með augum Hrafns Jóns­son­ar.

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, mun skrifa inn­gang að hverjum pistli til að setja þá í sam­hengi við þjóð­fé­lags­um­ræð­una hverju sinni og ef nægir pen­ingar safn­ast þá er stefnt að því að fá ein­hvern heims­frægan til að rita inn­gang henn­ar. Hrafn mun síðan sjálfur rita ódauð­leg loka­orð.

Allar frek­ari upp­lýs­ingar má finna hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None