Virðing hf., hefur ákveðið að opna skrifstofu í London. Henni verður stýrt af Gunnari Sigurðssyni, sem starfað hefur sem sérfræðingur á framtakssjóðasviði Virðingar undanfarið. Gunnar mun bera starfsheitið framkvæmdastjóri Virðingar í Bretlandi. Gunnar var á árum áður forstjóri Baugs Group, eins stærsta fjárfestingafélags Íslands fyrir hrun. Áður en Gunnar réð sig til Virðingar starfaði hann meðal annars í Bretlandi og sem ráðgjafi skilanefnda Landsbankans varðandi eignir hans þar sem höfðu verið í eigu Baugs. Um var að ræða eignir á borð við Iceland Foods, House of Frasier og Hamleys.
Í fréttatilkynningu frá Virðingu kemur fram að fyrirtækið hafi sótt um tilskilin leyfi til breska fjármálaeftirlitsins til að opna skrifstofu í London. Gert er ráð fyrir að hún taki til starfa á síðasta ársfjórðungi 2016 og muni hafa starfsheimildir til fyrirtækja- og fjárfestingaráðgjafar, auk móttöku og miðlunar viðskiptafyrirmæla.
Hannes Frímann Hrólfsson, forstjóri Virðingar, segir að starfsemi fyrirtækisins hafi vaxið mikið að undanförnu og opnun skrifstofu í London sé liður í að styrkja stöðu þess í þjónustu við viðskiptavini og að greiða fyrir frekari fjárfestingu erlendra aðila á Íslandi. „Hérlendis hefur orðið jákvæð efnahagsleg þróun, fjárhagsleg styrking ríkisins og bætt áhættuflokkun þess á erlendum mörkuðum og í framhaldi af þeirri þróun og áframhaldandi losun fjármagnshafta teljum við að tímasetningin sé hárrétt til að taka þetta skref og nýta það viðamikla tengslanet sem félagið og starfsmenn þess búa yfir.“
Virðing er verðbréfafyrirtæki sem veitir fjárfestingatengda þjónustu á sviði eignastýringar, markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og reksturs framtakssjóða. Hjá Virðingu starfa 34 sérfræðingar og hefur félagið starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki og starfar undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Virðing er með um 105 milljarða króna í eignastýringu.