Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur náð samkomulagi við bandaríska eignastýringarfyrirtækið Pt Capital Advisors, um kaup á íslenska fjarskiptafyrirtækinu Nova. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Pt Capital Advisors er dótturfélag Pt Capital, og er með aðsetur í Anchorage í Alaska. Félagið leggur megináherslu á fjárfestingar á norðurslóðum, en Nova er fyrsta fjárfesting félagsins hér á landi. Kaupverðið á Nova er trúnaðarmál.
Í tilkynningunni er haft eftir Björgólfi Thor að það sé sérstaklega ánægjulegt að erlendir fjárfestar með reynslu af farsímamarkaði telji það góðan kost að taka þátt í íslensku viðskiptalífi. „Slík innspýting í íslenskan efnahag er afar mikilvæg.“ Liv Bergþórsdóttir, forstjóri fyrirtækisins, segist stolt af því að hafa byggt upp fyrirtæki sem hafi náð góðum árangri á íslenskum fjarskiptamarkaði, og fjárfesting Pt sé viðurkenning á þeim árangri.
Nova er með mesta markaðshlutdeild á farsímamarkaði á Íslandi og yfirburðastöðu í gagnamagnsnotkun á farsímaneti. Greint var frá því í vor að Novator hefði sett fyrirtækið í söluferli með hjálp fyrirtækjaráðgjafar Kviku banka. Þá sagði Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Novator, að heildarvirði fyrirtækisins væri ekki undir 15 milljörðum króna. Samkvæmt heimildum Kjarnans var kaupverðið hærra en 15 milljarðar króna.
Novator átti 94% hlut í Nova en stjórnendur fyrirtækisins, meðal annars Liv Bergþórsdóttir forstjóri, sex prósenta hlut.
Nova er orðið það fjarskiptafyrirtæki sem er með mesta markaðshlutdeild á farsímamarkaði á Íslandi. Þetta kemur fram í tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar um stöðuna á fjarskiptamarkaði í lok árs 2015 sem birt var á þriðjudag. Alls eru 34 prósent allra áskrifta á farsímaneti hjá Nova en 33,8 prósent hjá Símanum. Vodafone er í þriðja sæti með 28,1 prósent og 365, sem boðið hefur upp á fjarskiptaþjónustu með síma og interneti frá haustinu 2013, er með 3,4 prósent hlutdeild.
Staðan á þessum markaði hefur breyst hratt á undanförnum árum. Um mitt ár 2008, hálfu ári eftir að Nova hóf starfsemi, var Síminn með 56,6 prósent markaðshlutdeild á farsímamarkaði og Vodafone með 36,4 prósent. Samanlögð markaðshlutdeild fyrirtækjanna tveggja var því 93 prósent. Nú er hún um 62 prósent.
Með sterkustu stöðuna í notkun gagnamagns
Nova er með langsterkustu stöðuna þegar kemur að notkun gagnamagns á farsímaneti. Markaðshlutdeild fyrirtækisins á þeim markaði er 64,6 prósent á meðan að Síminn er með 18,3 prósent og Vodafone með 12,8 prósent. Einungis 4,1 prósent af gagnamagnsnotkun á farsímaneti í fyrra var á meðal viðskiptavina 365.
Þessi notkun segir þó ekki alla söguna. Uppistaðan af gagnamagnsnotkun Íslendinga á sér stað á fastanetinu. Þ.e. Íslendingar reyna frekar að vera með snjalltækin sín tengd fastaneti heima hjá sér og á vinnustöðum frekar en að notast við 3G eða 4G kerfin til að ná sér í gögn. Á fastanetinu er Síminn með mjög sterka stöðu. Alls eru 48,8 prósent allra internettenginga á Íslandi hjá Símanum.
Nova hefur ekki selt internetþjónustu með öðrum hætti en í gegnum farsímakerfi á undanförnum árum. Á því varð breyting í síðasta mánuði þegar að fyrirtækið tilkynnti að það ætlaði að hefja ljósleiðaraþjónustu. Því mun samkeppnin þar aukast til muna á næstunni.
Aftur orðinn á meðal ríkustu manna heims
Björgólfur Thor er aftur orðinn á meðal ríkustu manna heims, samkvæmt lista Forbes, en auðæfi hans eru metin á 1,6 milljarða Bandaríkjadala, eða sem nemur 208 milljörðum króna. Björgólfur Thor er númer 1.121 á lista Forbes yfir ríkasta fólk heimsins. Hann fór hæst í 249. sæti árið 2007. Eignir Björgólfs Thors eru meðal annars í fjarskiptafélögunum Play í Póllandi og WOM í Chile, auk þess að eiga eignarhluti í félögunum Xantis Pharma og Allergan líkt og áður sagði.Björgólfur Thor var á barmi gjaldþrots eftir hrun fjármálakerfisins, og í persónulegum ábyrgðum fyrir tugmilljarðaskuldum, en tókst að semja við kröfuhafa sína, halda eignarhlutum í stórum fyrirtækjum, meðal annars Actavis, sem síðan hefur sameinast öðrum félögum og stækkað, og þannig ná vopnum sínum á nýjan leik.