Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, hafa enn ekki rætt saman eftir að flokksþingi flokksins lauk 2. október síðastliðinn. Á þinginu sigraði Sigurður Ingi Sigmund Davíð í formannskosningu.
Þetta kemur fram í viðtali við Sigurð Inga í þættinum Forystusætið sem sýndur var á RÚV í gærkvöldi. Sigurður Ingi segir þar að hann hafi þó fengið skilaboð frá Sigmundi Davíð en viðurkennir að traustið á milli þeirra mætti vera betra.
Formannskosningarnar á flokksþingi Framsóknarflokksins voru dramatískar. Eftir að tilkynnt var um sigur Sigurðar Inga, og hann fór í pontu til að halda sigurræðu, sat Sigmundur Davíð sem fastast í sæti sínu. Hann gekk síðan út úr Háskólabíói, þar sem fundurinn fór fram, á meðan að Sigurður Ingi lauk ræðu sinni.
Sigmundur Davíð hefur síðar sagt að það hafi komið sér mjög á óvart að hafa tapað kosningunum. Í viðtali við Reykjavík Síðdegis í síðustu viku sagðist hann hafa orðið vitni að undirförli, hannaðri atburðarás, endalausum spuna og algjörum skorti á prinsippum í aðdraganda og á flokksþinginu sjálfu.
Hann hefur þó þvertekið fyrir að ætla í sérframboð, þrátt fyrir áskoranir þar um, og ætlar að leiða lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi kosningum líkt og hann hefur fengið umboð til.