Bjarni telur óraunhæft að halda stjórnarsamstarfinu áfram

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, telur það ekki raun­hæft að rík­is­stjórn­ar­sam­starf flokks hans og Fram­sókn­ar­flokks haldi áfram eftir kom­andi kosn­ing­ar, þar sem að fylgi þeirra verði að öllum lík­indum ekki nægt til að mynda tveggja flokka rík­is­stjórn. „Það virð­ist ekki vera mögu­leiki að þessir tveir flokkar saman myndi einir rík­is­stjórn og þá verður maður að vera opinn fyrir öllum öðrum kost­um, maður verður bara að beita ein­hverju raun­sæ­i,“ sagði Bjarni í þætt­inum For­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi.

Þar sagði Bjarni að aðstæður í stjórn­málum væri mjög óvenju­leg­ar. Fyrir honum væri alltaf fyrsti kostur að mynda tveggja flokka stjórn, mörg erfið mál komi upp á hverju kjör­tíma­bili og eftir því sem flokk­arnir í stjórn verði fleiri verði sér­sjón­ar­miðin magn­aðri. Það geti leitt til stjórn­ar­falls.

Sam­kvæmt nýj­ustu Kosn­inga­spá Kjarn­ans munu sjö flokkar fá yfir fimm pró­­senta fylgi og myndu því geta náð inn kjör­dæma­kjörnum þing­­mönnum í kosn­­ing­unum þann 29. októ­ber næst­kom­andi. Það stendur þó tæpt hjá Bjartri fram­­tíð, sem hefur mælst með 5,1 pró­­senta fylgi í tveimur kosn­­inga­­spám í röð. Miðað við stöð­una í dag geta engir tveir flokkar myndað tveggja flokka rík­is­stjórn. Þeir flokkar sem eru næst því eru Sjálf­stæð­is­flokkur og Pírat­ar, en for­svars­menn beggja flokka hafa sett mik­inn fyr­ir­vara við hinn og ólík­legt verður að telj­ast að þeir vinni saman að loknum kosn­ing­um. 

Auglýsing

Einu sinni á lýð­veld­is­­tím­­anum hefur það gerst að sjö flokkar nái kjöri á Alþingi, en það var árið 1987. Þá voru klofn­ings­fram­­boð frá bæði Sjálf­­stæð­is­­flokki og Fram­­sókn­­ar­­flokki í fram­­boði og fengu menn inn á þing. Borg­­ara­­flokk­­ur­inn, undir for­ystu Alberts Guð­­munds­­son­­ar, náði sjö mönnum inn á þing. Þá fengu Sam­tök um jafn­­rétti og félags­­hyggju einn mann kjör­inn í eina kjör­­dæm­inu sem boðið var fram í, Norð­­ur­landi eystra, en það var Stefán Val­­geir­s­­son. Sam­tök um jafn­­rétti og félags­­hyggju var sér­­fram­­boð hans, en hann hafði áður verið lengi þing­­maður fyrir Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn, rétt eins og Albert hafði lengi verið þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins. Í þessum kosn­­ingum náði Kvenna­list­inn einnig að tvö­­falda fylgi sitt frá kosn­­ing­unum 1983, og fékk sex þing­­konur inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None