Stjórnarandstöðuflokkarnir á Alþingi, Píratar, Björt framtíð, Samfylkingin og Vinstri-græn, ætla að reyna að mynda meirihlutastjórn eftir kosningar ef þeir fá til þess umboð. Þetta kemur fram í yfirlýsingum frá leiðtogum flokkanna á Facebook, en þau funduðu öðru sinni í morgun.
Flokkarnir fjórir hafa á tveimur fundum skoðað kosningaáherslur flokkanna og segjast finna mikinn samhljóm. „Við teljum samstarf þessara flokka vera skýran valkost við núverandi stjórnarflokka sem getur skapað ný tækifæri fyrir íslenskt samfélag. Á grundvelli þessa teljum við fulla ástæðu til að kanna möguleika á myndun meirihlutastjórnar ef þessir flokkar fá til þess umboð í komandi kosningum.“
Birgitta Jónsdóttir, Óttarr Proppé, Oddný Harðardóttir og Katrín Jakobsdóttir settu öll inn sömu yfirlýsinguna á Facebook síður sínar, og segja flokkana hafa unnið vel saman í stjórnarandstöðu á þessu kjörtímabili, „sem er óvenju stutt vegna afhjúpana Panama-skjalanna sem sýndu tengsl ríkisstjórnarflokkanna við aflandsfélög í skattaskjólum.
Nú er rétti tíminn til að ráðast í þau verk sem þjóðin kallar eftir, uppbyggingu innviða og skapa traustan og stöðugan grunn fyrir aukin lífsgæði. Það þarf nýja forgangsröðun og sýn á samfélagið. Til að varanlegur stöðugleiki komist á, verður að ástunda ábyrga efnahagsstjórn en jafnframt vinna að félagslegum stöðugleika. Að öðrum kosti næst ekki sátt í samfélaginu að loknum kosningum. Þörf er á betri vinnubrögðum sem byggjast á fagmennsku, samvinnu og gagnsæi. Vanda þarf til verka og innleiða kerfisbreytingar skref fyrir skref,“ segir í yfirlýsingunni.