Þungt hljóð í kennurum

Útlit er fyrir erfiða kjaradeilu milli kennara og sveitarfélaga.

kennarar mótmæli
Auglýsing

Þungt hljóð er í grunn­skóla­kenn­urum en við­ræður Félags­ grunn­skóla­kenn­ara og sveit­ar­fé­laga hófust í gær, og er annar fundur hjá rík­is­sátta­semja á dag­skrá á morg­un.

Fjöl­mennur fundur kenn­ara í Háskóla­bíói í gær, ályktaði á þá ­leið að nauð­syn­legt væri að hækka laun kenn­ara strax, og koma til móts við slæma stöðu sem skóla­starfið stemmdi í, meðal ann­ars vegna lít­illar nýlið­unar í kenn­ara­stétt. „Fjöl­mennur fundur kenn­ara hald­inn í Há­skóla­bíói þriðju­dag­inn 15. nóv­em­ber skorar á borg­ar­stjórn Reykja­víkur að ­semja strax við Félag grunn­skóla­kenn­ara. Lág laun kenn­ara hafa nú þegar vald­ið því að grunn­skól­inn er að drabb­ast nið­ur, kenn­arar hyggja á upp­sagnir og ný­liðun í kenn­ara­stétt er alltof lít­il. Alvar­legur kenn­ara­skortur blasir við á næstu miss­er­um. Fund­ur­inn krefst þess að grunn­laun kenn­ara hækki nú þeg­ar þannig að þau taki mið af menntun þeirra og síauk­inni ábyrgð. Við förum fram á að Reykja­vík­ur­borg sem stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins axli ábyrgð sína á stöð­u grunn­skól­anna með því að hafa for­göngu um nauð­syn­legar hækk­anir kenn­urum til­ handa og bregð­ist við þeim bráða­vanda sem við blas­ir. Eftir það er nauð­syn­leg­t að hefja upp­bygg­ingu grunn­skól­anna að alvöru,“ sagði í bókun sem fund­ur­inn ­sam­þykkti.

Grunn­skóla­kenn­arar hafa verið án samn­ings síðan í júní og hafa í tvígang fellt kjara­samn­inga.

Auglýsing

Ákvörðun Kjara­ráðs, um að hækka laun æðstu ráða­manna ­þjóð­ar­inn­ar, for­seta Íslands, þing­manna og ráð­herra, hefur fallið í grýtt­an jarð­veg á vinnu­mark­aði, og hafa öll helstu hags­muna­sam­tök og stétt­ar­fé­lög, hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni, atvinnu­rek­endum og starfs­fólki hjá hinu opin­bera, mót­mælt ákvörð­un­inn­i og sagt hana grafa undan mögu­leik­anum á sátt á vinumark­að­i. 

Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, sagði ákvörð­un­ina kalla á að þing verði kallað taf­ar­laust saman til þess að aft­ur­kalla hana.

Ákvörð­unin var tekin 29. októ­ber, á kjör­dag. Í rök­stuðn­ingi segir meðal ann­ars, að mik­il­vægt sé að æðstu ráða­menn búi við fjár­hags­legt öryggi og séu engum háðir í starfi sínu.

For­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, hefur þegar afþakk­að ­launa­hækk­un­ina en ekk­ert hefur verið gefið út um það, hvort þing­menn og ráð­herrar muni gera slíkt hið sama.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None