Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn funda áfram í dag

Einn mánuður er liðinn frá Alþingiskosningunum 29. október og enn hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn. Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir ræða saman í dag en þeim tókst ekki að ljúka fundi sínum í gær.

Bjarni Benediktsson leiðir Sjálfstæðsflokkinn en það er stærsti þingflokkurinn á Alþingi eftir kosningarnar í lok október. Vinstri græn eru með næst stærsta þingflokkinn.
Bjarni Benediktsson leiðir Sjálfstæðsflokkinn en það er stærsti þingflokkurinn á Alþingi eftir kosningarnar í lok október. Vinstri græn eru með næst stærsta þingflokkinn.
Auglýsing

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna halda áfram í dag. Fundur þeirra Bjarna Bene­dikts­sonar og Katrínar Jak­obs­dóttur í gær klárað­ist ekki og verður fram haldið í dag. Bæði verj­ast þau fregna af fundum sínum og segj­ast enn vera að „ræða stóru lín­urn­ar.“ Sam­an­lagt hafa þessir flokkar 31 þing­mann og vantar því einn enn til þess að geta myndað meiri­hluta.

Bjarni sagð­ist í sam­tali við RÚV í fyrsta skipti í gær hafi haf­ist sam­tal á milli þess­ara flokka um hvort hægt verði að brúa mál­efna­bilið á milli Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann var á leið á rík­is­stjórn­ar­fund þegar frétta­stofa RÚV náði tali af hon­um.

„Í fyrsta skipti í gær áttum við dýpra sam­tal um mál­efnin og stefnu flokk­anna á ein­stökum sviðum og hvort það er hægt að brúa bil þar á milli,“ sagði Bjarni. Hann segir að und­an­farna daga hafi skýrst hvaða mögu­leikar séu í boði og jafn­vel þó það sé eng­inn form­legur tímara­mmi á við­ræðum Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna þá sé það vitað að allir vinni undir tíma­pressu. „[...] hún er ekki óbæri­leg en það er mjög mik­il­vægt að ljúka þessu eins hratt og hægt er.“

Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, fund­aði með þing­flokki sínum í dag. Vís­ir.is náði tali af henni á leið inn á fund­inn sagði hún að það væri „mjög lítið títt“ og að nú væri fund­ar­hlé á fundum þeirra Bjarna. „Við erum enn þá að ræða stóru lín­urn­ar,“ sagði hún. Eftir þing­flokks­fund­inn sagði hún ekki ljóst hvenær hlut­irnir yrðu komnir á hreint.

Á meðan bíða Bene­dikt Jóhann­es­son og Ótt­arr Proppé á hlið­ar­lín­unni en eins og Kjarn­inn hefur greint frá höfðu Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Við­reisn og Björt fram­tíð kom­ist að sam­komu­lagi um meg­in­at­riði í myndun nýrrar rík­is­stjórnar áður en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn snéri sér alfarið að Vinstri græn­um.

Aðrir kostir höfðu einnig staðið til boða; til dæmis rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Við­reisn­ar. Bene­dikt hafn­aði hins vegar boði um aðild Við­reisnar að því rík­is­stjórn­ar­sam­starfi.

Flokk­arnir hafa und­an­farna daga slegið af kröfum sínum í hugs­an­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­um. Píratar sam­þykktu til dæmis á sunnu­dags­kvöld að gera ekki lengur kröfu um að ráð­herrar ann­arra flokka sem þeir myndu fara í stjórn­ar­sam­starf með segðu af sér þing­mennsku.

Ann­ars staðar biðja þing­menn aðra flokka um að hafa opn­ari hug gagn­vart þeim flokkum sem sátu í rík­is­stjórn á síð­asta kjör­tíma­bili. Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skrif­aði á Face­book-­síðu sína í dag um „vit­leys­isum­ræð­una í íslenskum stjórn­mál­um“ sem ætlar engan enda að taka.

„Nú er erfitt að mynda rík­is­stjórn því eng­inn vill vera 3ja hljól undir vagni síð­ustu rík­is­stjórn­ar. Af sömu ástæðu gætu sjálf­stæð­is­menn ákveðið að fara ekki í stjórn með Vg og Sam­fylk­ing­unni því hann vill ekki vera 3ja hjól undir vagni Jóhönnu­stjórn­ar­innar frá 2009-2013,“ skrifar Brynj­ar. „Hættum þess­ari 3ju hjóls umræðu enda ekki um að ræða vagna eða hjól heldur nýja rík­is­stjórn með nýjum og öðru­vísi stjórn­ar­sátt­mála.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None