„Ég ætla að yfirgefa viðskiptaveldið mitt frábæra að fullu“

Donald Trump ætlar að halda blaðamannafund 15. desember til að útskýra hvernig hann ætlar að skilja að hagsmuni viðskiptaveldis síns frá forsetaembættinu.

Donald Trump hefur haldið fundi með fólki sem hann hugsar sér að gera að ráðherrum eða embættismönnum í forsetatíð sinni. Fundirnir hafa allir farið fram í gullslegnum húsakynnum Trump í New York eða í skálum golfklúbba hans.
Donald Trump hefur haldið fundi með fólki sem hann hugsar sér að gera að ráðherrum eða embættismönnum í forsetatíð sinni. Fundirnir hafa allir farið fram í gullslegnum húsakynnum Trump í New York eða í skálum golfklúbba hans.
Auglýsing

Auð­jöf­ur­inn Don­ald Trump, nýkjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna, ætlar að sleppa tak­inu af við­skipta­veldi sínu að fullu og kynna fyrir fjöl­miðlum hvernig hann ætlar að fara að því 15. des­em­ber næst­kom­andi. Þetta er haft eftir Trump í dag, meðal ann­ars á vef Reuters.

Trump hefur boðað til blaða­manna­fundar ásamt fjöl­skyldu sinni 15. des­em­ber þar sem hann kynnir áform sín um hvernig hann ætlar að skilja að við­skipta­hags­muni sína og hags­muni Banda­ríkj­anna.

„Ég ætla að halda rosa­legan frétta­fund í New York með börn­unum mínum 15. des­em­ber og ræða þá stað­reynd að ég ætla að yfir­gefa við­skipta­veldið mitt frá­bæra að fullu til þess að geta ein­beitt mér að því að stjórna land­inu svo Amer­íka verði frá­bær að nýju,“ sagði Trump.

Auglýsing

Hefð er fyrir því í Banda­ríkj­unum að nýkjörnir for­setar segi sig frá öllum fyr­ir­tækja­rekstri og setji hlut­lausa aðila yfir fyr­ir­tækin á meðan þeir gegna emb­ætt­inu. Það er hins vegar ekki laga­leg kvöð heldur óskrifuð regla.

Trump hefur áður sagt að hann sjái ekki hvernig hags­munir hans sem eig­andi stórra fyr­ir­tækja með hags­muni á alþjóða­vísu muni skar­ast við starf hans sem for­seti Banda­ríkj­anna.

Þegar vanga­veltur voru um hvað yrði um fyr­ir­tæki Trump í aðdrag­anda kosn­ing­anna var því lofað að börnin hans myndu taka við stjórn­ar­taumunum til þess að fría Don­ald Trump ábyrgð og hags­mun­um. Slíkt var harð­lega gagn­rýnt enda aug­ljóst að slíkt myndi ekki full­nægja hefð­inni.

„Þess vegna er verið að útbúa lög­form­leg skjöl sem skilja mig alger­lega frá við­skipta­rekstri. For­seta­emb­ættið er mun mik­il­væg­ara,“ sagði Trump einnig.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None