AirBnB gefur eftir í baráttunni við löggjafa í Evrópu

Fjöldi heimagistinga í Reykjavík hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum í takti við aukinn straum ferðamanna hingað til lands.
Fjöldi heimagistinga í Reykjavík hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum í takti við aukinn straum ferðamanna hingað til lands.
Auglýsing

Banda­ríska hús­næð­is­leigu­síðan Air­bn­b.com ætlar að gefa eftir í bar­áttu sinni við lög­gjafa í Evr­ópu og gera borgum það kleift að tak­marka fjölda daga sem hver íbúð á skrá getur verið í leigu á ári. Fyr­ir­tækið hefur þegar sam­þykkt að tak­marka fjölda nátta í útleigu í London og Amster­dam, sem eru tveir af stærstu mörk­uðum Air­BnB í Evr­ópu. Til greina kemur að íslensk stjórn­völd óski eftir slíkum tak­mörk­unum fyrir íbúðir hér á landi. Þessi mögu­leiki hefur hins vegar ekki verið kann­aður hjá Air­BnB.

Hér á landi hefur ný lög­gjöf verið sam­þykkt um tak­mark­anir á útleigu heim­ila og fast­eigna. Lög­gjöfin tekur gildi um ára­mótin en þá verður fjöldi daga sem fast­eign getur verið í útleigu tak­mark­aður við 90 daga, sé ekki sótt um sér­stakt rekstr­ar­leyfi. Fjallað er um lög­gjöf­ina í grein á vefnum Gest­ur.­is.

Air­BnB hefur verið undir tölu­verðum þrýst­ingi víða um heim vegna þeirra áhrifa sem fyr­ir­tækið hefur haft á hótel og gisti­rýma­mark­að. Víða hefur leyf­is­skild starf­semi í ferða­þjón­ustu talið troðið á rétti sínum til að veita gisti­þjón­ustu þegar almenn­ingi er býðst kostur á að veita svip­aða þjón­ustu án þeirra kvaða sem leyf­is­skildir aðilar búa við.

Auglýsing

Þess vegna hafa stjórn­völd víða brugð­ist við og sett tak­mark­anir á fjölda daga sem hús­næði í einka­eigu getur verið í leigu á ári hverju. Í Amster­dam er sá fjöldi 60 dag­ar. Eins og áður segir verður fjöldi leigu­daga tak­mark­aður við 90 daga hér á landi, hafi við­kom­andi leigu­sali ekki til­skilin leyfi.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans til atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins segir að ekki sé úti­lokað að haga hlutum þannig að skylt verði að skrá skrán­ing­ar­númer við aug­lýs­ingar á vef Air­BnB. Eftir laga­breyt­ing­una verður þeim sem eru með heimagist­ingu skylt að sækja um skrán­ing­ar­númer sem nota skal við alla mark­aðs­setn­ingu á heimagist­ing­unni.

Til þess að fá skrán­ing­ar­númer verða ein­stak­lingar sem ætla að leigja út íbúð­ina sína eða hluta af heim­ili sínu að upp­fylla ákveðnar kröfur um bruna­varn­ir, ástand og húsa­kynnin verða að vera sam­þykkt sem íbúð. Sér­stakt árgjald að upp­hæð 8.000 krónur þarf einnig að greiða fyrir skrán­ing­una. Allar þessar kröfur eru gerðar til þess að ein­falda og bæta eft­ir­lit með leyf­is­lausri starf­semi. Í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að ekki standi til að útvista þess­ari skrán­ingu til aðila á borð við Air­BnB.

Skráningar á AirBnB nóvember 2016.

Fjöldi gisti­rýma í útleigu hér á landi hefur marg­fald­ast á síð­ustu árum og þá gildir einu um hvort það eru heilar íbúðir eða afmörkuð her­bergi sem eru í boði. Á Air­bn­b.com hefur verið hægt að finna 3.104 skráð gisti­rými síð­ustu 30 daga í Reykja­vík. Þessi fjöldi var að jafn­aði um 1.700 gisti­rými árið 2015 og rúm­lega 700 árið 2014. 73,2 pró­sent þeirra sem bjóða upp á leigu í Reykja­vík á vef Air­BnB bjóða heila íbúð til leigu. Í 59 pró­sent til­vika voru eignir í Reykja­vík sam­tals í útleigu í minna en þrjá mán­uði und­an­farið ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None