Píratar segja að mikil málefnavinna hafi farið fram undanfarna tíu daga í viðræðum þeirra fimm flokka sem slitu viðræðum um ríkisstjórnarmyndun fyrr í dag. Áhersla hafi verið lögð á erfiðustu viðfangsefnin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pírötum. „Mjög lítið bar á milli og sátt hafði náðst um flest málin.“
Píratar segjast hafa sýnt það í stjórnarmyndunarviðræðunum að þar fari flokkur sem beri hag almennings fyrir brjósti og sé tilbúinn til að gera málamiðlanir án þess að fara yfir eigin sársaukaþröskuld.
Vinstri græn sendu einnig frá sér tilkynningu, þar sem sagt er að viðræðurnar hafi verið gagnlegar þrátt fyrir að ekki hafi náðst samstaða um að halda þeim áfram að sinni. Flokkurinn hafi talið brýnt að gerðar verði breytingar í þágu umbóta í heilbrigðis-, mennta- og velferðarmálum og við uppbyggingu innviða. „Það er mat þingflokksins að til að mæta lágmarksþörfum og koma til móts við ákall úr samfélaginu í þessum efnum þurfi, varlega áætlað, á þriðja tug milljarða króna.“
Þá verði ennfremur að takast á við raunverulega uppbyggingu á þessum sviðum í ríkisfjármálaáætlun til næstu fimm ára. „Mikil samstaða var um mikilvægi þessara áherslna í aðdraganda kosninga enda um afar brýn verkefni að ræða. Umbæturnar þarf að fjármagna með ábyrgum hætti í tekjuöflunarfrumvarpinu sem liggur fyrir þinginu og í framhaldinu liggi fyrir áætlanir um tekjuöflun til næstu fimm ára.“