Sigurður Ingi segir Framsókn ekki klofinn flokk

sigurður ingi jóhannsson
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir flokk sinn alger­lega trú­verð­ugan sam­starfs­flokk í nýrri rík­is­stjórn eins og hann sé í dag. Hann segir engan klofn­ing vera í flokknum og full­yrðir að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður hefðu gengið betur ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði tekið þátt í þeim. Þetta kom fram í við­tali við Sig­urð Inga í þætt­inum Sprengisandi á Bylg­unni í morg­un.

Eini flokk­ur­inn sem hefur sýnt mik­inn vilja til að mynda rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Rík­is­stjórn flokk­anna tveggja féll hins vegar í kosn­ing­unum og þurfa þeir að minnsta kosti einn flokk til við­bótar til að geta haldið rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sínu áfram í meiri­hluta. Við­mæl­endur Kjarn­ans í öðrum flokkum hafa allir úti­lokað að þeir myndu koma inn í núver­andi stjórn­ar­sam­starf. Til greina kæmi að starfa með annað hvort Sjálf­stæð­is­flokki eða Fram­sókn­ar­flokki í rík­is­stjórn undir vissum kring­um­stæðum og ef saman næð­ist um mál­efni, en engin mögu­leiki væri á því að fara í sam­starf með þeim báð­um. Ástæð­urnar eru m.a. þær að kosið var vegna spill­ing­ar­mála sem tengd­ust síð­ustu rík­is­stjórn og eng­inn vilji er til að fram­lengja líf­tíma henn­ar.

Meiri lin­kind eru þó gagn­vart sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk en Fram­sókn­ar­flokki. Það sést á því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur þegar tekið þátt í nokkrum óform­legum og form­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­um, ann­ars vegar með Bjartri fram­tíð og Við­reisn og hins vegar með Vinstri græn­um, en Fram­sókn hefur enn ekki verið boðið að taka þátt í neinu slíku sam­tali. Ein helsta ástæðan er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins og odd­viti í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Hann þykir óút­reikn­an­leg­ur, ekk­ert traust er til hans hjá þing­mönnum ann­arra stjórn­mála­flokka en Sjálf­stæð­is­flokks og sífellt her­skárri yfir­lýs­ingar hans um sam­særi gegn sér í Wintris-­mál­inu og árásir fjöl­miðla þykja ekki trú­verð­ug­ar.

Auglýsing

Mikið frost hefur verið milli Sig­mundar Dav­íðs og Sig­urðar Inga frá því að sá síð­ar­nefndi bauð sig fram gegn honum sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og vann í byrjun októ­ber síð­ast­lið­inn.

Við­var­andi verk­efni að bæta sam­skiptin

Sig­urður Ingi var í við­tali á RÚVá föstu­dags­morgun og við­ur­kenndi þar að það bæti verið betra á milli hans og Sig­mundar Dav­íðs. Það væri því miður stað­reynd. For­­sæt­is­ráð­herra sagði það vera við­var­andi verk­efni að bæta sam­­skipti við Sig­­mund Davíð innan þing­­flokks Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins og sagð­ist vona að Sig­­mundur Davíð fari brátt að taka þátt í þing­­störf­um, sem hann hefur ekki gert til þessa á nýju kjör­­tíma­bili.

Sama dag var Sig­mundur Davíð spurður út í stöð­una innan Fram­sókn­ar­flokks­ins í marg­um­töl­uðu við­tali við RÚV. Þar svar­aði hann flestum spurn­ingum um sam­starfsörð­ug­leika innan flokks­ins með því að segja að RÚV bæri mesta ábyrgð á þeim flokksá­­tökum sem ættu sér stað.

Sig­urður Ingi sagði á Sprengisandi í morgun að hann hefði ekki stórar áhyggjur af sam­skiptum við Sig­mund Dav­íð. „Ég hef ekki stór­ar áhyggj­ur af því. Ég held að það geti ann­­ars veg­ar lag­­ast með ein­hverj­um hætti. Það að Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn standi ekki traust­um fót­um fyr­ir það sem hann stend­ur fyr­ir og þing­­flokk­­ur­inn bakki það ekki upp hef ég eng­ar áhyggj­­ur“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None