Kjarninn með næst minnst vantraust á eftir miðlum RÚV

Fréttamiðlar RÚV njóta mest trausts og fæstir vantreysta þeim. Magnús Geir Þórðarson er útvarpsstjóri RÚV.
Fréttamiðlar RÚV njóta mest trausts og fæstir vantreysta þeim. Magnús Geir Þórðarson er útvarpsstjóri RÚV.
Auglýsing

Flestir lands­menn bera mikið traust til frétta­miðla RÚV. Alls segj­ast 69 pró­sent þeirra treysta frétta­stofu RÚV og 67 pró­sent vef henn­ar, rúv.is. Fæstir van­treysta einnig RÚV, en 13 pró­sent segj­ast van­treysta frétta­stof­unni og 14 pró­sent RÚV.is. Kjarn­inn er sá íslenski mið­ill sem íslenskir fjöl­miðla­not­endur van­treysta minnst utan frétta­miðla RÚV. 21 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera frekar eða mjög lítið traust til Kjarn­ans. Þetta kemur fram í nýrri könn­un MMR um traust til fjöl­miðla.

Traust til Kjarn­ans eykst frá því að könn­unin  var síð­ast gerð, í des­em­ber 2014. Nú treysta 31 pró­sent Kjarn­anum en 27 pró­sent gerðu það árið 2014.  Kjarn­inn situr í sjö­unda sæti yfir þá miðla sem njóta mest trausts á Íslandi og er sá eini af efstu átta miðlum lands­ins sem bætir við sig trausti frá 2014. Frétta­miðlar RÚV, frétta­stofa Stöðvar 2, mbl.is, Morg­un­blað­ið, Vís­ir.is og Frétta­blaðið tapa öll trausti frá síð­ustu mæl­ingu. Frétta­tím­inn bætir tölu­verðu trausti við sig milli mæl­inga. Hann mæld­ist  með 18 pró­sent traust 2014 en er nú með 25 pró­sent. 

Van­traust eykst gagn­vart öllum fjöl­miðlum lands­ins. Eina und­an­tekn­ingin er Stund­in, en traust og  van­traust til þess mið­ils er nú mælt í fyrsta sinn. Alls sögð­ust 26 pró­sent treysta Stund­inni en 29 pró­sent segj­ast van­treysta henni. Mest er van­traust­ið ­gagn­vart miðlum þeirra miðla sem heyra undir Press­una og DV, en þeim er stýrt af Birni Inga Hrafns­syni, útgef­anda Vef­pressunn­ar. Alls segj­ast 66 pró­sent aðspurðra, eða tveir af hverjum þrem­ur, van­treysta DV og DV.is og 48 ­pró­sent van­treysta Press­unni. Þessir þrír miðlar er líka þeir sem fæstir treysta. Alls segj­ast ell­efu pró­sent treysta Press­unni, átta pró­sent DV.is og sjö pró­sent DV. Traust á Press­una eykst frá síð­ustu könnun en dregst veru­lega saman á miðla DV.

Auglýsing

Hægt er að sjá allar nið­ur­stöð­urnar úr könn­un MMR hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None