Segir að Sjálfstæðisflokkur eigi að leiða næstu ríkisstjórn

7DM_4446_raw_1652.JPG
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir að hann sé sann­færður um að flokkur sinn eigi að leiða næstu rík­is­stjórn. Fylgi flokks­ins beri höfuð og herðar yfir aðra flokka. Þetta kom fram í við­tal hans við Björn Bjarna­son á sjón­varp­stöð­inni ÍNN sem sýnt var í kvöld.

Bjarni hefur verið í við­ræðum við for­svars­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar um myndun nýrrar rík­is­stjórnar und­an­farna daga. Í gær lögðu for­menn tveggja síð­ar­nefndu flokk­anna, Bene­dikt Jóhann­es­son og Ótt­arr Proppé, fram mál­efna­til­lögur fyrir Bjarna en ásteyt­ing­ar­stein­arnir eru þeir sömu og voru í hin tvö skiptin sem flokk­arnir þrír reyndu að mynda rík­is­stjórn: sjáv­ar­út­vegs- og Evr­ópu­mál. Við­mæl­endur Kjarn­ans sem koma að við­ræð­unum telja þó allir meiri líkur en minni á að saman náist í þetta skipt­ið. Slík rík­is­stjórn væri með 32 þing­menn á bak við sig, eða minnsta mögu­lega meiri­hluta.

Sjálf­stæð­is­menn hafa ítrekað reynt að fá Við­reisn og Bjarta fram­tíð til að opna á að taka Fram­sókn­ar­flokk­inn með í rík­is­stjórn til að styrkja hana. Báðir flokk­arnir hafa aftekið það með öllu opin­ber­lega oftar en einu sinni. Bjarni ræddi þann mögu­leika í við­tal­inu við Björn í kvöld og sagð­ist hafa átt gott sam­starf við Fram­sókn­ar­flokk­inn. „Mér finnst að menn hafi verið að reisa alls­konar veggi og girð­ing­ar. Margir hafa sagt við störfum ekki með Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum sam­an, við erum til í að starfa með hvorum sem er, sem er ein­hver svona hug­detta bara fyrir mér, þá líður mönnum eins og þeir séu að ganga inn í rík­is­stjórn­ina en það er allt bara í koll­inum á fólki eins og ég sé það. Að sjálf­sögðu væri það ný rík­is­stjórn, með nýjan stjórn­ar­sátt­mála, með nýtt upp­haf, að hluta til með nýju fólki.“

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None