sigmundur davíð
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, vill að Rík­is­út­varpið biðji hann afsök­unar og konu hans afsök­unar á þeirri með­ferð sem þau hafi hlotið af hálfu RÚV á árinu 2016. Hann spyr Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóra að þessu í opnu bréfi sem hann birtir í Morg­un­blað­inu í morg­un. 

Sig­mundur Davíð fer þar í mjög löngu máli yfir sam­skipti sín við RÚV og segir m.a. að það hafi ekki farið fram­hjá neinum sem með málum hafi fylgst að „frá því að ég hóf þátt­töku í stjórn­málum fyrir átta árum síðan hefur hóp­ur ­starfs­manna og verk­taka í Efsta­leiti 1 haft eitt og annað við mig og Fram­sókn­ar­flokk­inn að ­at­huga umfram flesta (alla) aðra stjórn­mála­menn og -­flokka.“ Hann segir um hóp að ræða sem hafi miklar skoð­anir á sam­fé­lags­málum en ekki mikla samúð með hans mál­stað, og kallar hóp­inn SDG-RÚV hóp­inn. 

Sig­mundur nefnir engin nöfn og talar svo aðeins um RÚV í grein sinni, en ekki þennan ótil­greinda hóp. Hann heldur því meðal ann­ars fram að frétta­maður á RÚV hafi kallað hann skít­hæl þegar Ices­ave nið­ur­staðan hafi verið ljós og að hann hafi verið skammaður og gagn­rýndur af frétta­mönnum þar í gegnum tíð­ina, m.a. í Ices­ave og fyrir kosn­ing­arnar 2013. „Við þau bæt­ast meðal ann­ar­s ó­tal pistlar fast­ráð­inna starfs­manna og verk­taka, umfjöllun í umræð­u- þáttum og jafn­vel barna­efni. Í við­tals­þáttum í útvarpi og sjón­varpi hef ég svo fengið sér­stakar trakt­er­ing­ar, ­jafn­vel frá þeim sem að öllu ­jöfnu gera út á að vera „lauf­létt­ir“ og lausir við póli­tík.“

Auglýsing

Hann segir það ríkj­andi við­horf á RÚV að játa aldrei mis­tök, og fer í löngu máli yfir við­horf sitt gagn­vart umfjöllun RÚV um Panama­skjöl­in. „Fram­ganga Rík­is­út­varps­ins var öll með mestu ólík­indum og á engan hátt skyld því sem mér var á sín­um ­tímum kennt að væru grund­vall­ar­regl­ur frétta­mennsku,“ skrifar hann meðal ann­ars. Hann fjallar um umfjöllun erlendra fjöl­miðla um Panama­skjölin og mál hans, en segir að RÚV og sam­verka­menn þess hafi ekki verið að fylgja for­dæmi erlendra miðla „heldur að mata þá til að reyna að beita þeim fyrir sig í íslenskri póli­tík­.“ 

„Eftir því sem frá leið þurfti eng­inn að efast um hvert væri meg­in­ skot­mark­ið. Þegar ég hafði stigið til­ hliðar hvarf skyndi­lega allur áhugi á Pana­ma-skjölum og því hvaða nöfn hefðu birst þar og hvers vegna. Við tóku áhyggjur nokk­urra RÚ­V-aktí­vista af því að ég kynni að halda áfram í stjórn­mál­um. Þær á­hyggjur leyndu sér ekki á manna­mót­u­m og sam­fé­lags­miðl­um. Eft­ir ­fylgdu afar sér­stæð afskipti af mál­efn­um Fram­sókn­ar­flokks­ins, köll­u­m það ein­lægan áhuga. Sá áhug­i birt­ist m.a. í beinum útsend­ing­um frá hverjum Fram­sókn­ar­fund­in­um á eftir öðrum auk reglu­bund­inna við­tala við fólk sem menn vissu hvar þeir hefð­u.“ 

Sig­mundur end­ur­tekur svo það sem hann hefur oft sagt, að félag þeirra hjóna, sem eig­in­kona hans á í dag, hafi aldrei verið notað til að draga úr skatt­greiðsl­um, að aldrei hafi verið reynt að fela til­vist félags­ins Wintris og hún hafi ekki nýtt tæki­færi til að hagn­ast á íslenskum aðstæð­um. Þau hjón hafi ekki bara verið sam­visku­söm heldur fórn­fús. „Rétt­læti RÚV felst í að níða þá í svaðið sem eru til­búnir að fórna eig­in hags­munum en líta fram hjá því þegar menn verja eigin hags­mun­i. Það er sitt hvað rétt­læti og RÚV­læt­i.“ 

Hér má lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu Kjarn­ans um Wintris-­mál­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None