Vinstri græn og Framsókn reyna við Sjálfstæðisflokk

Morgunblaðið fullyrðir að formenn Vinstri grænna og Framsóknar séu að reyna að verða valkostur fyrir Sjálfstæðisflokk í ríkisstjórn. Búið að semja um ESB, sjávarútveg og landbúnað við Viðreisn og Bjarta framtíð.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, hafa und­an­farna daga farið yfir mál og sett punkta á blað sem eiga að vera grund­völlur við­ræðna við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Því eru Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn að reyna að gera sig að val­kosti fyrir Sjálf­stæð­is­flokk í stjórn­ar­sam­starfi nú þegar form­legar við­ræður hans við Við­reisn og Bjarta fram­tíð um myndun rík­is­stjórnar eru langt komnar og búist er við að stjórn­ar­sátt­máli þeirra verði kynntur fyrir viku­lok. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag. 

Fram til þessa hefur mik­ill meiri­hluti þing­flokks Vinstri grænna lagst alfarið gegn því að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. 

Frétta­blaðið greinir hins vegar frá því að sátt hafi náðst í öllum þeim stóru málum sem steytti á í síð­ustu tveimur við­ræðu­lotum milli Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar. Þar segir að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla verði haldin um hvort hefja eigi aðild­ar­við­ræður að Evr­ópu­sam­band­inu að nýju og að ákvæði verði í stjórn­ar­sátt­mála um að skoð­anir rík­is­stjórn­ar­flokk­anna á mál­inu séu afar mis­mun­andi. Þeim verði því í sjálf­vald sett hvernig þeir greiði atkvæði um þings­á­lyktun um atkvæða­greiðsl­una. Sam­kvæmt þessu mun málið því verða sett til þings­ins í formi þings­á­lykt­unar og án fulls stuðn­ings nýrrar rík­is­stjórn­ar. Það mun svo ákveða hvort atkvæða­greiðslan fari fram eður ei.

Auglýsing

Blaðið segir einnig frá því að hlut­fall af afla­heim­ildum verði boðið upp árlega til að tryggja að mark­aðs­verð fáist fyrir afla­heim­ildir í sjáv­ar­út­vegi. Kjarn­inn hefur áður greint frá því að Við­reisn hafi lagt fram til­lögur í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum um að selja þrjú til fjögur pró­sent afla­heim­ilda á hverju ári til 33 ára

Þá hafði, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, þegar náðst sátt um tákn­rænar aðgerðir í land­bún­að­ar­málum í átt að breyt­ingum á því kerfi þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Við­reisn og Björt fram­tíð ræddu fyrst saman í nóv­em­ber. Þær aðgerðir verða einnig hluti af stjórn­ar­sátt­mála flokk­anna nú, tak­ist að klára hann. Í þeim fel­ast meðal ann­ars að tollar verða lækk­aðir á bæði kjúklinga, svína­kjöt og osta í áföng­um. Þá verði end­ur­skoðun á búvöru­samn­ingi tekin föstum tökum og sam­komu­lag hefur náðst um að afnema þær und­an­þágur sem Mjólk­ur­sam­salan hefur frá sam­keppn­is­lög­um.

Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar eiga að hefj­ast í dag. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta Íslands síð­degis á föstu­dag. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None