Píratar: Fjármálaráðherra lét sína hagsmuni ganga framar öðrum

Þingflokkur Pírata krefst þess að mál er snúa að skýrslu um aflandseign verði rædd hið fyrsta í þingingu.

Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata.
Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata.
Auglýsing

Þing­flokkur Pírata „for­dæmir ein­dregið vinnu­brögð fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar við skil á skýrslu um starf­semi Íslend­inga á aflands­svæð­um, sem og skýr­ingar hans á ástæðum þess að hún var ekki gerð opin­ber fyrr. „Þing­flokkur Pírata telur aug­ljóst að fjár­mála­ráð­herra lét per­sónu­lega og póli­tíska hags­muni sína ganga framar hags­munum almenn­ings við ákvörðun sína um að birta ekki umrædda skýrslu þegar hann fékk hana afhenta. Í ljósi þess að fjár­mála­ráð­herra er meðal þeirra Íslend­inga sem átt hefur félag á aflands­svæði var hann einnig með öllu van­hæfur til að taka ákvörðun um tíma­setn­ingu birt­ingar skýrsl­unn­ar, hvað þá að fresta henni um tæpa fjóra mán­uði frá því henni var skil­að,“ segir í yfir­lýs­ingu Pírata.

Enn fremur segir að ráð­herra hafi sagt almenn­ingi ósatt um mál­ið, og það gangi ekki upp. „Fyrir liggur að skýrsl­unni var skilað til ráðu­neytis hans þann 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og var ráð­herra sér­staka kynnt efni hennar þann 5. októ­ber, rúmri viku áður en þingi var slitið fyrir kosn­ing­ar. Ráð­herra getur vart borið fyrir sig minnis­glöpum í þessu sam­hengi, þar sem hann svar­aði sjálfur óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn um málið á Alþingi þann 10. októ­ber. Þar full­yrti hann að umrædd skýrsla yrði birt á næstu dög­um, vit­andi vel að skýrslan væri til­búin til birt­ing­ar. Þetta þýðir að ráð­herra getur ekki hafa verið það óljóst, aðspurður af frétta­stofu Rúv, hvort þingi hafi verið slitið eða ekki þegar skýrslan var til­bú­in,“ segir í yfir­lýs­ingu Pírata.



Þá er krafa gerð um það að málið verði tekið fyrir í efna­hags- og við­skipta­nefnd hið fyrsta. Þá er tekið fram að það myndi veikja stöðu þings­ins ef það þyrfti að byrja á því að yfir­heyra nýjan for­sæt­is­ráð­herra um þessi mál, eftir að ný rík­is­stjórn - sem ekki hefur form­lega verið mynduð enn - hefur tekið til starfa. „
Að sama skapi hvetjum við umboðs­mann Alþingis til að taka án tafar fyrir erindi Svan­dísar Svav­ars­dóttur vegna þessa máls, þar sem nær óum­deil­an­legt virð­ist að fjár­mála­ráð­herra hafi brotið gegn grein 6.c) í siða­reglum ráð­herra með vinnu­brögðum sín­um, en þar seg­ir: „Ráð­herra leynir ekki upp­lýs­ingum sem varða almanna­hag nema lög bjóði eða almanna­hags­munir krefj­ist þess að öðru leyti. Ráð­herra ber að hafa frum­kvæði að birt­ingu slíkra upp­lýs­inga sé hún í almanna­þág­u[...]Í sið­uðum lýð­ræð­is­ríkjum er það kallað spill­ing þegar stjórn­mála­menn beita opin­beru emb­ætti í þágu per­sónu­legra og póli­tískra hags­muna. Þá er það kallað lygi, þegar menn fara vís­vit­andi með rangt mál,“ segir í yfir­lýs­ingu Pírata.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None