Kristinn Gylfi Jónsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Brúneggja, segir að fyrirtækið sé til sölu. Ýmsir áhugasamir hafi haft samband að undanförnu en einnig sé leitað nýrra fjárfesta. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Þar segir Kristinn að ekkert óeðliegt sé við að aðilar í tengdum greinum sýni Brúneggjum áhuga. „Það var metið að þetta bú væri með hátt í 18 til 20 prósent af markaðnum á sínum tíma. Það er ljóst að Íslendingum fjölgar, eggjaneysla er mikil og er vaxandi og ferðamönnum fjölgar. Þessi vara þarf að vera til.[...] Við höfum ekki selt nein egg í búðir sem okkur þykir mjög sérstakt því það er ekkert að þessum eggjum og bú okkar hafa starfsleyfi. Við erum með verulegan húsakost og annað og höfum verið að standsetja nýtt bú í Brautarholti og erum með gott bú í Borgarfirði. Eggin hafa safnast upp en við höfum einnig dregið úr framleiðslunni.“
Í lok nóvember var sýndur Kastljós-þáttur þar sem fjallað var um fordæmalaus afskipti Matvælastofnunar af eggjabúum Brúneggja. Í þættinum kom fram að Brúnegg hefði, að mati stofnunarinnar, blekkt neytendur árum saman með því að notast við merkingar sem héldu því fram að eggjaframleiðsla fyrirtækisins væri vistvæn og að varphænur þess væru frjálsar. Í krafti þess kostuðu eggin um 40 prósent meira en þau egg sem flögguðu ekki slíkri vottun.
Kastljós fékk aðgang að gögnum um afskipti Matvælastofnunnar af Brúneggjum og í þeim kom í ljós að stofnunin hefur í tæpan áratug haft upplýsingar um að Brúnegg uppfyllti ekki skilyrði sem sett voru fyrir því að merkja vörur sem vistvænar. Það væri því að blekkja neytendur. Atvinnuvegaráðuneytið hafði líka þessar upplýsingar, en neytendum var ekki greint frá þeim.
Fyrir rúmu ári síðan hafi staðið til að taka yfir vörslu á hænum Brúneggja vegna ítrekaðra brota á lögum um meðferð dýra, meðal annars með því að vera með allt of marga fugla í eggjahúsum. Til að koma í veg fyrir vörslusviptinguna þurftu Brúnegg að slátra um 14 þúsund fuglum.
Brúnegg ehf. hefur hagnast um tugi milljóna á ári undanfarin ár. Til að mynda var hagnaður fyrirtækisins tæplega 42 milljónir króna 2015 og tæplega 30 milljónir árið 2014. Samtals hefur hagnaður fyrirtæksins á árunum 2009 til 2016 verið vel yfir tvö hundruð milljónir króna. Bræðurnir Kristinn Gylfi Jónsson og Björn Jónsson eiga fyrirtækið í gegnum einkahlutafélög sín, og þessi félög högnuðust samanlagt um tæplega hundrað milljónir króna 2015.
Allar stærstu verslunarkeðjur landsins, þar á meðal lágvöruverslanarisarnir Bónus og Krónan, tóku Brúnegg úr sölu hjá sér eftir Kastljós-þáttinn og hafa ekki tekið vöruna aftur inn.