Brúnegg
Auglýsing

Krist­inn Gylfi Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri og einn eig­enda Brú­neggja, segir að fyr­ir­tækið sé til sölu. Ýmsir áhuga­samir hafi haft sam­band að und­an­förnu en einnig sé leitað nýrra fjár­festa. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir Krist­inn að ekk­ert óeðli­egt sé við að aðilar í tengdum greinum sýni Brú­neggjum áhuga. „Það var metið að þetta bú væri með hátt í 18 til 20 pró­sent af mark­aðnum á sínum tíma. Það er ljóst að Íslend­ingum fjölgar, eggja­neysla er mikil og er vax­andi og ferða­mönnum fjölg­ar. Þessi vara þarf að vera til­.[...] Við höfum ekki selt nein egg í búðir sem okkur þykir mjög sér­stakt því það er ekk­ert að þessum eggjum og bú okkar hafa starfs­leyfi. Við erum með veru­legan húsa­kost og annað og höfum verið að stand­setja nýtt bú í Braut­ar­holti og erum með gott bú í Borg­ar­firði. Eggin hafa safn­ast upp en við höfum einnig dregið úr fram­leiðsl­unn­i.“

Auglýsing

Í lok nóv­em­ber var sýnd­ur Kast­­ljós-þáttur þar sem fjallað var um for­­dæma­­laus afskipti Mat­væla­­stofn­unar af eggja­­búum Brú­­neggja. Í þætt­inum kom fram að Brú­­negg hefði, að mati stofn­un­­ar­inn­­ar, blekkt neyt­endur árum saman með því að not­­ast við merk­ingar sem héldu því fram að eggja­fram­­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins væri vist­væn og að varp­hænur þess væru frjáls­­ar. Í krafti þess kost­uðu eggin um 40 pró­­sent meira en þau egg sem flögg­uðu ekki slíkri vott­un. 

Kast­­ljós fékk aðgang að gögnum um afskipti Mat­væla­­stofn­unnar af Brú­­neggjum og í þeim kom í ljós að stofn­unin hefur í tæpan ára­tug haft upp­­lýs­ingar um að Brú­­negg upp­­­fyllti ekki skil­yrði sem sett voru fyrir því að merkja vörur sem vist­væn­­ar. Það væri því að blekkja neyt­end­­ur. Atvinn­u­­vega­ráðu­­neytið hafði líka þessar upp­­lýs­ing­­ar, en neyt­endum var ekki greint frá þeim.

Fyrir rúmu ári síðan hafi staðið til að taka yfir vörslu á hænum Brú­­neggja vegna ítrek­aðra brota á lögum um með­­­ferð dýra, meðal ann­­ars með því að vera með allt of marga fugla í eggja­hús­­um. Til að koma í veg fyrir vörslu­­svipt­ing­una þurftu Brú­­negg að slátra um 14 þús­und fugl­­um.

Brú­­negg ehf. hefur hagn­­ast um tugi millj­­óna á ári und­an­farin ár. Til að mynda var hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins tæp­­lega 42 millj­­ónir króna 2015 og tæp­­lega 30 millj­­ónir árið 2014. Sam­tals hefur hagn­aður fyr­ir­tæks­ins á árunum 2009 til 2016 verið vel yfir tvö hund­ruð millj­­ónir króna. Bræð­­urnir Krist­inn Gylfi Jóns­­son og Björn Jóns­­son eiga fyr­ir­tækið í gegnum einka­hluta­­fé­lög sín, og þessi félög högn­uð­ust sam­an­lagt um tæp­­lega hund­rað millj­­ónir króna 2015.

Allar stærstu versl­un­ar­keðjur lands­ins, þar á meðal lág­vöru­versl­anarisarnir Bónus og Krón­an, tóku Brú­negg úr sölu hjá sér eftir Kast­ljós-þátt­inn og hafa ekki tekið vör­una aftur inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None