Stjórnvöld ætla að tryggja markaðsverð fyrir orku

hvalfjorur_17819112229_o.jpg
Auglýsing

Íslensk stjórn­völd hafa fall­ist á að breyta íslensku reglu­verki og tryggja að raf­orku­fyr­ir­tæki, sem nýta nátt­úru­auð­lindir í almanna­eigu til orku­fram­leiðslu, greiði alltaf mark­aðs­verð fyrir slík afnot. Stjórn­völd ætla einnit að fara yfir gild­andi samn­inga með orku­fyr­ir­tækj­unum til að tryggja að til fram­tíðar verði einnig greitt mark­aðs­verð. 

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, en aðgerð­irnar sem íslensk stjórn­völd ætla að ráð­ast í byggja á til­mælum eft­ir­lits­stofn­un­ar­inn­ar. ESA fór fram á það að farið yrði í gagn­gera end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi þess­ara mála til að koma í veg fyrir rík­is­að­stoð til orku­fyr­ir­tækja. Íslensk stjórn­völd brugð­ust við þessu með því að skipa starfs­hóp til að yfir­fara gild­andi lög­gjöf og leggja til þær breyt­ingar sem nauð­syn­legar eru. Þá ætlar starfs­hóp­ur­inn að móta skýra aðferða­fræði um hvernig mark­aðs­verð nátt­úru­auð­linda verður ákveð­ið. Starfs­hóp­ur­inn ætlar auk þess að end­ur­skoða alla samn­inga sem eru í gild­i. 

ESA hefur ákveðið að loka rann­sókn sinni á rík­is­að­stoð til orku­fyr­ir­tækja á Íslandi vegna þess­ara við­bragða, en ætlar engu að síður að fylgj­ast með fram­vindu mála á Ísland­i. 

Auglýsing

„Þessar breyt­ingar eru til að tryggja eðli­legt end­ur­gjald fyrir nýt­ingu nátt­úru­auð­linda í eigu almenn­ings og þar með sann­gjarna sam­keppni á íslenskum raf­orku­mark­að­i,“ segir Helga Jóns­dótt­ir, stjórn­ar­maður hjá ESA. 

Nauð­­syn­­legt til að tryggja sam­keppni

ESA sagði í ákvörðun sinni í fyrra að ráð­staf­an­­irnar sem lagðar eru til séu nauð­­syn­­legar til að tryggja megi sann­­­gjarna og virka sam­keppni á íslenska raf­­­orku­­­mark­aðn­­­­­um. ESA telur nauð­­­syn­­­legt að til að tryggja sam­keppni þurfi orku­­­fyr­ir­tæki að greiða mark­aðs­verð fyrir nýt­ingu nátt­úru­auð­linda. Íslensk stjórn­­­völd hafi hins vegar í fjöl­­­mörgum til­­­vikum veitt orku­­­fyr­ir­tækjum aðgang að nátt­úru­auð­lindum til að fram­­­leiða raf­­­orku úr vatns­­­afli eða jarð­varma án þess að nokkur lög­­­­­gjöf sé til um efni slíkra samn­inga. Það er hvorki skýr laga­­­skylda til að fara fram á greiðslu mark­aðs­verðs né opin­ber mæli­kvarði á það hvernig ákvarða eigi end­­­ur­­­gjald á Ísland­i. 

ESA vill að sett verði lög til að tryggja að öll til­­­­­færsla nátt­úru­auð­linda vegna raf­­­orku­fram­­­leiðslu fari fram á mark­aðs­­­for­­­sendum og að slík kvöð yrði bind­andi fyrir bæði ríki og sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ir. 

„Setja þarf lög sem fela í sér að ávallt sé farið fram á greiðslu mark­aðs­verðs þegar orku­­­fyr­ir­tækjum eru veitt rétt­indi til að nýta nátturauð­lindir í almanna­eigu. Til að ganga úr skugga um að aðilar njóti jafn­­­ræðis þurfa íslensk stjórn­­­völd auk þess að hafa skýra aðferða­fræði um hvernig mark­aðs­verð nátt­úru­auð­linda verður ákvarð­að,” sagði Sven Erik Sved­man, for­­­seti Eft­ir­lits­­­stofn­unar EFTA, í frétta­til­kynn­ingu frá stofn­un­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None