Einn Héraðsdómur verði með yfirstjórn í Reykjavík en átta starfsstöðvar um landið

Starfshópur dómsmálaráðherra um sameiningu héraðsdómstólanna átta í eina stofnun leggur til að sameinaður dómstóll fái nafnið Héraðsdómur og hafi áfram starfsemi á þeim átta stöðum þar sem héraðsdómstólar starfa í dag.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Starfs­hópur sem Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra skip­aði í lok síð­asta vetrar til þess að fjalla um sam­ein­ingu hér­aðs­dóm­stóla lands­ins mælir með því að allir átta hér­aðs­dóm­stólar lands­ins verði sam­ein­aðir í einn undir nafn­inu Hér­aðs­dóm­ur, yfir­stjórn dóm­stóls­ins verði stað­sett í Reykja­vík en starfs­stöðvar verði áfram á þeim stöðum þar sem hér­aðs­dóm­stól­arnir eru nú stað­sett­ir.

Skýrsla starfs­hóps­ins var birt á sam­ráðs­gátt stjórn­valda í dag, en í hópnum sátu þau Sig­urður Tómas Magn­ús­son, hæsta­rétt­ar­dóm­ari og for­maður stjórnar dóm­stóla­sýsl­unn­ar, Brynjar Níels­son, lög­maður og aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra, og Eva Bryn­dís Helga­dóttir lög­mað­ur.

Starfs­hóp­ur­inn leggur til að kveðið verði á um það í lögum um dóm­stóla að þrír starfs­menn verði að lág­marki starf­andi á hverri starfs­stöð, þar af að minnsta kosti tveir hér­aðs­dóm­arar eða einn hér­aðs­dóm­ari og einn dóm­ara­full­trúi. Lagt er til að horft verði til þess að sam­ein­ing dóm­stól­anna gangi í gegn 1. ágúst 2024.

Auglýsing

Sam­kvæmt því sem fram kemur í sam­ráðs­gátt stjórn­valda er lagt til að dóm­stjóri hins sam­ein­aða Hér­aðs­dóms verði skip­aður til fimm ára af stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar úr hópi starf­andi hér­aðs­dóm­ara á grund­velli aug­lýs­ing­ar. Sama er lagt til að gildi um skipun vara­dóm­stjóra dóm­stóls­ins.

Þá er einnig lagt til að dóm­stjóri ákveði fjölda starfs­manna við hverja starfs­stöð Hér­aðs­dóms og ráði aðra starfs­menn dóms­ins en hér­aðs­dóm­ara. Einnig er lagt til að dóm­stjóri hafi úthlutun allra mála sem rekin verða í hér­aði á hendi sér og að mögu­legt verði fyrir dóm­stjóra að úthluta málum án til­lits til þess hvar dóm­arar eða dóm­ara­full­trúar hafi fasta starfs­stöð og án til­lits til þess við hvaða starfs­stöð málin verði rek­in.

„Þannig skap­ist svig­rúm til þess að úti­vist­ar­mál af ýmsum toga verði afgreidd á hvaða starfs­stöð Hér­aðs­dóms sem er og eftir atvikum önnur mál. Með þessu ætti jafn­framt að verða svig­rúm til að nýta mannauð á hér­aðs­dóm­stig­inu betur en nú er og eftir atvikum skapa sér­hæf­ingu í til­teknum mála­flokkum ef það þykir heppi­leg­t,“ segir í sam­an­tekt um efni skýrsl­unnar í sam­ráðs­gátt­inni.

Dóms­mála­ráð­herra birti fyrr á þessu ári áform um laga­setn­ingu um sam­ein­ingu hér­aðs­dóm­stól­anna í eina stofnun í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og sagði þar að meðal ástæðna fyrir því að verið væri að skoða þessa sam­ein­ingu dóm­stól­anna væru ábend­ingar Rík­is­end­ur­skoð­unar í skýrslu frá 2020, þess efnis að sam­ein­ing hér­aðs­dóm­stóla væri skil­virkasta og árang­urs­rík­asta leiðin að auk­inni sam­ræm­ingu innan dóms­kerf­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent