Ólafur Ólafsson, sem dæmdur var í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Al Thani-málinu svokallaða, fær að bera ákvörðun endurupptökunefndar um að synja honum um endurupptöku málsins undir dómstóla. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í gær kröfu ríkisins um að vísa frá máli Ólafs á hendur ríkissaksóknara og íslenska ríkinu þar sem farið er fram á efnislega meðferð málsins fyrir héraðsdómi. Ólafur hafði einnig gert kröfu um að viðurkennt yrði að skilyrði fyrir endurupptöku Al-Thani málsins væru uppfyllt. Þeirri kröfu hafnaði héraðsdómur á þeirri forsendu að með því væru dómstólar að taka nýja ákvörðun sem endurupptökunefnd hefði verið falið, þótt dómstólar myndu eftir sem áður geta metið hvort ákvarðanir nefndarinnar væru í samræmi við ákvæði laga.Þetta kemur fram í tilkynningu frá KOM almannatengslum sem send er fyrir hönd Ólafs.
Í fréttatilkynningunni er haft eftir Ólafi að stjórnvöld eigi „að bregðast við og leiðrétta alvarleg mistök í réttarkerfinu, líkt og þau sem gerð voru við meðferð Al-Thani málsins. Og þótt hafa megi á því ákveðinn skilning að sumir hverjir séu orðnir þreyttir á málarekstri vegna rannsókna og dómsmála síðustu ára, þá tel ég mikilvægt að berjast fyrir því að fólk njóti sannmælis og réttlátrar málsmeðferðar. Réttindi fólks verður að tryggja.“
Ólafur stefndi embætti ríkissaksóknara og íslenska ríkinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í október og vill að úrskurður endurupptökunefndar í málinu, sem féll í byrjun árs 2016, verði felldur úr gildi og viðurkennt að skilyrði fyrir endurupptöku málsins séu uppfyllt.
Í febrúar var greint frá því að endurupptökunefnd hefur hafnað beiðnum Ólafs um endurupptöku Al Thani málsins. Í niðurstöðu endurupptökunefndar vegna beiðni Ólafs sagði að það sé „hafið yfir allan skynsamlegan vafa“ að sá „Óli“ sem talað er um í símtali milli tveggja lögmanna, og var hluti gagna í málinu, sé Ólafur Ólafsson. Ólafur byggði endurupptökubeiðni sína á því að svo væri ekki heldur að verið væri að ræða annan „Óla“.
Ólafur fór einnig fram á að málið yrði endurupptekið vegna þess að tveir dómarar í Hæstarétti sem dæmdu í Al Thani-málinu, þeirra Árna Kolbeinssonar og Þorgeirs Örlygssonar, hefðu verið vanhæfir til að fella dóminn vegna þess að synir þeirra hefðu starfað hjá slitastjórn Kauþings. Þessari ástæðu var einnig hafnað af endurupptökunefnd.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum forstjóri Kaupþings, og Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður Kaupþings, fóru líka fram á endurupptöku Al Thani málsins vegna tengsla dómara við syni sína og vegna þess að sönnunargögn hefðu verið metin rangt. Þeirra beiðnum var einnig hafnað.
Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fangelsi í Al Thani-málinu, Sigurður fjögur ár, og Ólafur fjögur og hálft ár. Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, var líka dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í málinu.